Vertu memm

Freisting

Rasmus, ja Rasmus, hann er gamal drongur

Birting:

þann

Haldnir voru Færeyskir dagar nú um helgina á Fjörukránni í Hafnarfirði, boðið var upp á mat og tónlist frá eyjunum undir leiðsögn kokksins Birgir Enni og tónlistamannanna Neil Joensen og Eyðun Ásason og voru gerð góð skil á báðum þessum þáttum í húsnæði sem var eiginlega klæðskerasaumað utan atburð sem þennan.

Á fimmtudagskvöldið var blaðamanni Freistingar.is boðið á kynningu á áðurnefndum dögum og var byrjað með fordrykk á Hótel Viking www.fjörukrain.is, þar sem veitingamaðurinn hélt smá tölu um tilurð þessara uppákomu og skellti salurinn uppúr þegar hann lauk orði sínu með því að segja Íslendingar væru enn velkomnir til Færeyja.

Þá færði hópurinn sig yfir á Fjörukránna í borðhaldið sem var eftirfarandi:
 
Forréttur
Reykt Öðuskel ,reyktur lax,grafinn lax og djúprækja á salatbeði

Aðalréttur
Lambaframfille með eplum og rótargrænmeti

Ábætir
Kaffi , kransakökubiti líkjör eða koníak

Allt hráefni í forréttinum kom frá Færeyjum og má geta þess að færeyska aðan er um helmingi stærri en sú íslenska sem og að Birgir Enni www.nordlysid.com  kafaði sjálfur eftir skelinni og var hann gestum innan handar með upplýsingar um færeyskan mat og matarmenningu.

Aðalrétturinn var færeyskt lamb frá Suðureyjunum eldað að hætti eyjarskeggja og smakkaðist það mjög vel sem og forrétturinn.

Læt fylgja hér með matseðill dagana á færeysku og íslensku

Matseðil – Matseðill

Forrættir – Forréttir

  • Fiskisúppa
    – Sjávarréttarsúpa
  • Öðuskel v/ rækjum og hvitleyksdressing
    – Öðuskel með rækjum og hvítlauksdressingu
  • Gravad og royktur laksur v/ asparagus og piparrótarsós
    – Grafinn og reyktur Lax með spregli og piparrótarsósu
  • Skerpikjöt og skinsakjöt v/ breyði og snaps
    – Skerpukjöt og saltað kjöt með brauði og snafs

Hövuðsrættir – Aðalréttir

  • Fiska-fantasia ( bl fiskrætter )
    – Blandaðir Sjávarréttir
  • Steiktur og marineraður laksur v/ ris og fennel
    – Marineraður og steiktur lax með hrísgrjónum og Fenniku
  • Steikt Tvöst v/ smörsteitum leyki
    – Steiktur Hvalur með smjörsteiktum lauk
  • Suðuroyar lambasteik v/ eplum og grönsaskir
    – Suðureyjar Lambasteik með eplum og grænmeti
  • Steikt Lomviga v/ beikon
    – Steiktur Svartfugl með beikon

/Sverrir

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið