Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður við Skólavörðustíg

Hegningarhúsið við Skólavörðustíg í Reykjavík. Í gamla fangelsisgarðinum verður opnaður nýr veitingastaður á næsta ári.
Mynd: Guðmundur D. Haraldsson / Wikimedia Commons / CC BY-SA 3.0.
Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur og stofnandi Dill, hyggst opna nýjan veitingastað ásamt Ara Hermannssyni, stofnanda 280 Bakarí, og Hafsteini Júlíussyni, hönnuði og stofnanda HAF STUDIO. Staðurinn verður í nýbyggðum veitingaskála í gamla fangelsisgarðinum við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg í Reykjavík.
Minjavernd hefur undanfarin ár unnið að endurgerð Hegningarhússins og er nú verið að innrétta veitingaskálann. Stefnt er að því að opna staðinn á nýju ári.
Ítölsk matargerð og íslenskt hráefni
Í samtali við mbl.is segir Gunnar Karl að þá félaga hafi lengi dreymt um að opna veitingastað saman. Hugmyndin sé að skapa afslappaðan og notalegan stað þar sem ítölsk matargerð verður í aðalhlutverki.
„Leitast verður við að nota eins mikið af staðbundnum hágæða hráefnum og kostur er og mun matargerðin endurspegla afslappað andrúmsloft staðarins,“
segir Gunnar Karl í samtali við mbl.is.
Ari Hermannsson segir markmiðið að bjóða upp á þægilega rétti og gott vín, án þess að flækja hlutina um of.
Útiveitingar og viðburðir í fangelsisgarðinum
Hafsteinn Júlíusson mun sjá um hönnun og innréttingar staðarins. Veitingaskálinn er hannaður af Hjörleifi Stefánssyni arkitekt, sem hefur einnig haft umsjón með endurhönnun Hegningarhússins.
Í gamla fangelsisgarðinum verður boðið upp á útiveitingar og þar verður einnig komið fyrir sviði fyrir ýmsa viðburði.
Á sama tíma er unnið að þróun matseðils og hugmyndafræði veitingastaðarins.
Nánar má lesa um fyrirhugaðan veitingastað á mbl.is.
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn19 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar15 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð



