Starfsmannavelta
Lokar dyrunum eftir krefjandi rekstur

Kaffitár hefur lokað síðustu kaffihúsum sínum og hyggst hér eftir einbeita sér alfarið að kaffibrennslu og þróun nýrra kaffitegunda.
Kaffitár hefur lokað síðustu kaffihúsum sínum og hyggst hér eftir einbeita sér alfarið að kaffibrennslu og tengdum verkefnum. Ákvörðunin kemur í kjölfar erfiðs rekstrarumhverfis undanfarin ár, þar sem hækkandi kostnaður og breyttar aðstæður hafa sett mark sitt á reksturinn.
„Það eru breyttir tímar,“
segir Marta Rut Pálsdóttir, framkvæmdastýra kaffihúsa Kaffitárs, í samtali við mbl.is. Hún segir fyrirtækið hafa ákveðið að færa fókusinn yfir á kaffibrennslu, nýjar kaffitegundir og aðra starfsemi tengda vörumerkinu.
Kaffitár rak á sínum tíma sjö kaffihús, en þeim hefur fækkað jafnt og þétt frá heimsfaraldrinum. Nú hefur verið ákveðið að loka síðustu stöðunum í Kringlunni og Háskólanum í Reykjavík.
Marta segir rekstrarumhverfið hafa breyst mikið frá eigendaskiptum árið 2019 og að mikilvægt hafi verið að grípa til aðgerða áður en staðan yrði verri. Samhliða breytingunum ætlar fyrirtækið að leggja aukna áherslu á kaffibrennsluna sem sameinaðist Nýju kaffibrennslunni á Akureyri undir lok síðasta árs.
„Við erum að einbeita okkur að þeim rekstri sem stendur, og erum til dæmis komin með nýja tegund af kaffi á markað sem heitir Skuggatár og hefur fengið góðar viðtökur,“
segir Marta.
Nánar má lesa um málið hjá mbl.is.
Mynd: Facebook / Kaffitár
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt4 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn7 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFjölbreyttar keppnir þegar Hótel- og matvælaskólinn fagnar 30 árum
-
Markaðurinn8 klukkustundir síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna



