Freisting
Det er Danskt og det er Dejeligt.
|
|
Nú hafa þeir Hótel Óðinsvéarmenn opnað veitingastað hótelsins í hádeginu, en þó með þeim formerkjum að það er Brauðbær í hádeginu en Óið á kvöldin. Það sem flaug í gegnum huga minn þegar ég frétti af þessu var af hverju ekki fyrr, þar sem smurðbrauðstofa Brauðbæjar hefur verið starfrækt í allan tímann í húsinu, en betra er seint en aldrei.
Þetta hlýtur klárlega að hækka þjónustustig hótelsins þar sem í hádegi eru léttir réttir og danskt smurbrauð og svo á kvöldin fær yfirmatreiðslumaður staðarins Eyþór Rúnarsson útrás í sköpun sinni.
Hér verður fjallað um hádegisverðarstaðinn Brauðbæ en deildarstjóri þar er Oddrún Sverrisdóttir en hún nam sín fræði hjá Davidsen fjöldskyldunni þegar þau ráku Söpavillion í Kaupmannahöfn við vötnin, með henni vinnur Katrín Hamilton.

Gulrótarmauksúpan

Byrjað var á Gulrótarmauksúpu með brauðteningum, gulrótum og sýrðum rjóma, var hún silkimjúk með góðu bragði og lofaði góðu um framhaldið, því næst kom úrval af smurðu brauði á danska vísu, og hefur það verið í gegnum tíðina hjá mér að ef minnst er á pylsur dettur manni fyrst í hug Bæjarins bestu, í smurbrauði er það Brauðbær sem hlýtur hnossið.

Sneiðarnar sem við fengum að smakka voru rauspretta með remúlaði, rauðspretta með rækjum, reyktur lax með eggjasalati, hamborgarhryggur með kartöflusalati, rækjur með sítrónu og roast beef með remúlaði.



Allt smakkaðist þetta frábærlega og var ekki laust við að maður færi í danskan fíling og jafnvel byrjaður að tala dönsku og þurfti kallinn meira segja að draga þjóninn hann Ómar að landi í dönskuþýðingu, en hann jafnaði skorið með fantagóðri þjónustu.

Í eftirrétt epla crumble með þeyttum rjóma og fullkomnaði það máltíðina gersamlega.
Er það einlæg von okkar á Freisting.is að þessi breyting reynist gjöful fyrir þá í því öldurróti sem veitingastaðir glíma við um þessar mundir.


Myndir: Matthías Þórarinsson | Texti: Sverrir Halldórsson
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel21 klukkustund síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann



