Smári Valtýr Sæbjörnsson
Tjöruhúsið á Ísafirði innsiglað | … „mikið að gera á sumrin að skriffinskan vill gleymast“
Lögreglan á Vestfjörðum innsiglaði veitingastaðinn Tjöruhúsið rétt eftir hádegi í gær. Að sögn Hlyns Snorrasonar yfirlögregluþjóns var um stjórnvaldsaðgerð að ræða á vegum Ríkisskattstjóra.
„Þetta var skortur á skilagreinum til skattstjóra. Við verðum búin að opna aftur eftir smástund,“
..segir Magnús Hauksson vert á Tjöruhúsinu í samtali við vestfirska fréttamiðilinn bb.is.
Ekki náðist að opna aftur fyrir kl. 16 í gær. Skrifstofa skattstjóra er að sjálfsögðu lokuð um helgar og því öruggt að staðurinn verður lokaður í það minnsta yfir helgina, að því er fram kemur á bb.is.
Haukur Sigurbjörn, sonur Magnúsar, er ábyrgðarmaður rekstrarleyfisins en hann er búsettur í Reykjavík um þessar mundir.
Á fésbókarsíðu Tjöruhússins kemur fram að það sé alltaf svo mikið að gera á sumrin að „skriffinnskan vilji gleymast.“
„Svona er þetta. Skatturinn vinnur hægt og rólega. En ég hélt mig vera búinn að skila öllu sem beðið var um en fékk að vita að það vantaði eitthvað smá yfirlit. Þeir hafa náttúrulega ákveðnar heimildir þarna hjá skattinum,“ segir Magnús.
Myndir: bb.is
Twitter og Instagram: #veitingageirinn
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun13 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um





