Smári Valtýr Sæbjörnsson
Skemmtileg nýjung hjá Rauða húsinu á Eyrarbakka
Rauða húsið á Eyrarbakka ætlar að bjóða uppá nýjungar í haust og hefur sett saman nýjan þriggja rétta matseðil sem er sérstaklega hannaður með viskí í huga. Boðið verður uppá viskí smakk á undan þar sem gestir fá að smakka mismundi gerðir af eðalvískum aðallega frá Chivas Brothers í skotlandi.
Viskýin og matseðillinn:
Tvíreykt Svínalund carpaccio style
Scapa 16 ára
Nautalund með Chivas Regal, soðsósu og snöggsteiktu rótargrænmeti
Chivas Regal 18 ára
Engifer viskí ís
Aberlour 10 ára
Þeir félagar Stefán Ólafsson og Stefán Kristjánsson eru nýir rekstraraðilar á hinu rómaða Rauða húsi , en þeir munu taka vel á móti gestum og ekki skemmir verðið á þessari matar og vískí veislu eða aðeins 8900 krónur á manninn, en herlegheitin byrjaði núna í vikunni og verður matseðillinn í boði næstu vikurnar.
Til gamans má geta að Stefán Ólafsson er barþjónn og lærði þau fræði í Hannover í Þýskalandi árið 1997 og hefur unnið til margra verðlauna bæði á sviði kokkteil gerðar og sem viskí sérfræðingur. Stefán Kristjánsson er matreiðslumaður að mennt.
Það verður gaman að fylgjast vel með þeim félögum og vonandi getum við á veitingageiranum sýnt ykkur myndir af matnum á viský matseðlinum og fleiri uppákomum hjá Rauða húsinu.
Myndir: aðsendar
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn7 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn6 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt2 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Keppni6 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn5 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni6 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september





