Markaðurinn
Elskar þú að elda hollan og góðan mat?
Elskar þú að elda hollan og góðan mat? 1912 leitar að matreiðslumeistara með mikinn metnað og framúrskarandi samskiptahæfni.
HÆFNISKRÖFUR
• Menntun í matreiðslu
• Kostnaðarvitund, tölugleggni og góð almenn tölvufærni
• Þekking á útreikningum á næringargildi kostur
• Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þjónustulund, samstarfshæfni og jákvætt viðhorf
STARFS- OG ÁBYRGÐARSVIÐ
• Matreiðsla með hollustu og næringargildi að leiðarljósi
• Framreiðsla og frágangur í mötuneyti
• Innkaup og skipulagning matseðla
• Umsjón með kaffibörum og veitingum á fundum
• Þátttaka í vöruþróun og innri markaðssetningu
• Tilfallandi bakstur/matreiðsla vegna vörukynninga í búðum
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Viðkomandi starfsmaður myndi heyra undir mannauðsstjóra. Um er að ræða 100% starf og daglegur vinnutími 8.00-16.00. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir um starf sendi umsókn á: [email protected] merkta ,,matreiðslumeistari 1912“. Greina skal frá menntun, fyrri störfum og tekin fram sú reynsla sem umsækjandi telur að muni gagnast sér í starfi. Umsjón með ráðningu hefur Inga Guðrún Birgisdóttir mannauðsstjóri s. 821-8435. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til 11. ágúst.
1912 er traust fyrirtæki í heildverslun með dagvöru. Það þjónar dótturfélögum sínum Nathan & Olsen, Ekrunni og Góðu fæði með því að samnýta mannauð, tæki og aðrar auðlindir til að ná fram hagkvæmni í rekstri. Jafnframt er 1912 samnefnari þeirra gagnvart starfsfólki sem er í dag í kring um 90 talsins. Það býr við glæsilega aðstöðu í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Klettagörðum í Reykjavík þar sem jafnframt er rekið vel útbúið mötuneyti. Að auki er starfsstöð á Akureyri. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru: Frumkvæði – Liðsheild – Áreiðanleiki – Ástríða
1912 | Klettagörðum 19 | 104 Reykjavík | Sími 530 8500 | Fax 530 8501 | www.1912.is
Mynd: Aðsend.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Keppni3 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Frétt6 dagar síðanErfið tímamót hjá Berjaya en rekstur félagsins heldur áfram
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanÍtalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið
-
Markaðurinn2 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Markaðurinn1 dagur síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum


