Kristinn Frímann Jakobsson
VMA fær heimild til að fullmennta matreiðslu- og framreiðslumenn
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið heimild til þess að útskrifa matreiðslu- og framreiðslumenn en til þessa hafa nemendur þurft að fara suður yfir heiðar og ljúka náminu þar. Marína Sigurgeirsdóttir, brautarstjóri matvælabrautar VMA, segir þetta mjög ánægjulegt, enda hafi það verið baráttumál skólans til margra ára að fullmennta kokka og þjóna, að því er fram kemur á heimasíðu vma.is.
Verkmenntaskólinn fékk í sumar inn um lúguna heimild til þess að fullmennta kokka og þjóna sem er gríðarlega stór áfangi því þetta þýðir að við verðum ekki bara með grunnnámið heldur byggjum við hér upp framhaldsnám og nemendur geta lokið sínu námi hér. Nemendur þurfa því ekki lengur að fara í burtu til þess að ljúka sínu námi. Þetta skiptir því miklu námi fyrir nemendur og einnig fyrir til dæmis ferðaþjónustuna á svæðinu sem kallar eftir því að fá fleira menntað fólk á þessu sviði. Nemendur á samningum hjá veitingastöðum hér á svæðinu geta þá unnið með skólanum sem þýðir að viðkomandi vinnustaður missir starfsmanninn ekki frá sér á meðan á náminu stendur,
segir Marína.
Hún segist vonast til þess að strax næsta haust verði unnt að bjóða upp á framhaldsnám við matvælabraut VMA, að minnsta kosti í matreiðslunni. Marína segir að gott samstarf við atvinnulífið á svæðinu sé lykilatriði, varðandi námssamninga og fleira, og án nokkurs vafa verði það mjög gott hér eftir sem hingað til.
Við höfum verið með kjötiðnaðarnám hér og það hefur gengið mjög vel. Hins vegar hafa matreiðslu- og framreiðslumenn þurft að taka tveggja anna nám fyrir sunnan og það hefur ekki alltaf verið auðvelt fyrir nemendur, þó ekki væri fyrir annað en hversu erfitt er að fá þar leiguhúsnæði. Það er heilmikið byggðamál að geta nú boðið upp á allt þetta nám hér fyrir norðan,
segir Marína.
Aukin áhersla á ferðaþjónustuna í nýrri námsskrá
Á þessu skólaári er kennsla á matvælabraut VMA samkvæmt nýrri námsskrá sem Marína segir að sé afrakstur samstarfs fjögurra skóla – Hótels- og matvælaskólans í Kópavogi, VMA, Fjölbrautskóla Suðurlands á Selfossi og Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík.
Við byrjum á þessari haustönn að kenna samkvæmt þessari námsskrá og við köllum þetta nám „Grunnnám matvæla- og ferðagreina“ af þeirri einföldu ástæðu að það er erfitt að skilja matvælagreinarnar frá ferðaþjónustunni sem er eins og allir vita mjög vaxandi og hún kallar eftir auknum mannafla. Við erum að gefa ferðaþjónustunni aukið vægi í náminu og horfum til ýmissa þátta innan þeirrar greinar og liður í því er nýr áfangi „Þjónustusamskipti“ sem eiga að gera okkar nemendur hæfari til þess að sinna fjölþættri þjónustu,
segir Marína Sigurgeirsdóttir.
Greint frá á vma.is
Mynd: vma.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðan
100 myndir frá hátíðarkvöldverði KM
-
Keppni3 dagar síðan
Þessir veitingastaðir og Íslendingar eru tilnefndir til BCA 2025 – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Fyrsta heildstæða kennsluefnið í matreiðslu gefið út eftir 70 ára kennslusögu – Myndir frá útgáfuteitinu
-
Keppni4 dagar síðan
Ertu lærður matreiðslumaður eða matreiðslunemi og langar til að komast í ungkokkalandsliðið?
-
Nemendur & nemakeppni1 dagur síðan
Reynir Grétarsson matreiðslumeistari með áhugavert fræðsluerindi um súkkulaðigerð – Myndir
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Uppskrift – Poke skál með kjúklingi og salatosti
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift – Rjómalöguð tómatsúpa og grillað ostabrauð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Hótel og heilsulind Bláa Lónsins á meðal 10 bestu hótelum heims – Michelin