Keppni
Víkingur sigraði í Bacardi Legacy Íslands – Myndir
Óhætt að segja að þetta var hörð keppni í Bacardi Legacy Íslands nú í vikunni. En það skemmtilega við þetta að keppninn var gerð í mikilli vináttu og meira vera hvetja hvorn annan áfram í stað þess að berjast innbyrðist enda allir barþjónarnir bara rosalega stoltir að hafa verið valdir í TopOcho valið í fyrstu Bacardi Legacy keppninni hér á landi.
Sjá fleiri Bacardi Legacy Íslands fréttir hér.
Þeir keppendur sem kepptu, voru:
- Andri Pétursson – Krydd restaurant
- Daníel Hlynur Michaelsson – Deplar farm
- Jakob Eggertsson – Jungle
- Sævar Helgi Örnólfsson – Fjallkonan
- Siggi Strarup Sigurðsson – MB Taqueria
- Teitur Schiöth – Deplar farm
- Tiago Jorge – Sushi Social
- Víkingur Þorsteinsson – Jungle
Dómarar í keppninni:
- Frank Symons, yfirmaður Bacardi Legacy í Evrópu
- Juhu Eklund, Brand Ambassador Bacardi á Norðurlöndum
- Friðbjörn Pálsson Brand Manager Bacardi á Íslandi.
Nýbreytni í keppnum hér á landi
Keppnin fór fram á Petersen svítunni og var hún lokuð, bara keppendur og dómarar sem er svolítið nýbreytni í keppnum hér á landi. Fyrirkomulag sem gerði keppnina persónulegri og líkuðu keppendur og starfmenn Mekka það mjög vel. Að keppni lokinni var hoppað á Sushi Social í góðan dinner með keppendum og dómurum enda passaði vel við því miðvikudagar eri Bacardi Tiki dagar og auðvitað voru þeir kokteilar smakkaðir líka.
Vel heppnað Bacardi Meet and Greet
En eftir matinn var svo haldið aftur á Petersen svítuna þar sem haldið var Bacardi Meet and Greet þar sem fjöldinn allur af barþjónum mætti til að spjalla við keppendurnar ásamt Frank og Jahu sem voru að spjalla um Bacardi Legacy. En um kvöldið var svo tilkynnt hver var fyrsti keppendi Bacardi Legacy Iceland og mun fara fyrir Íslands hönd til Helsinki í Mars til að berjast um sæti í Bacardi Legacy Global sem er mánuði síðar í Miami.
Sigurvegari
Var þetta erfitt val enda frábærir barþjónar og frábærir drykkir en í lok dags var það Víkingur Thorsteinsson frá barnum Jungle sem vann fyrstu Bacardi Legacy keppni Íslands. Víkingur keppti með drykkinn „Pangia” sem allir barþjónarnir og dómarar voru sammála að hefði mikla möguleika að verða einn af þessum Legacy Cockteilum sem eigi eftir að lifa og Víkingur væri líklegur að gera flotta hluti á næstu skrefum keppninnar.
Styttist í að staðurinn hans Jungle opni í Austurstrætinu og mælum við með að kíkja á staðinn, því þetta er Drykkur sem er alveg þess virði að gera sér ferð í að smakka.
Myndir af keppninni – Ljósmyndari Ómar Vilhelmsson
Myndir af hittingnum og verðlaunafhendingunni – Ljósmyndari Majid Zarei
-
Uppskriftir4 dagar síðan
Meðlæti með jólamatnum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Veitingastaðurinn Brixton opnar formlega
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Girnilegt camembert jólatré með döðlu og pekan krönsi
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Opnunartími Ekrunnar yfir jól og áramót 2024
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Mikil uppbygging framundan á Hofsstöðum – Veitingastaðurinn með eigin framleiðslu og hráefni úr heimabyggð
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Hátíðar opnun Hafsins
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum – Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa