Vín, drykkir og keppni
Víking Gylltur valinn besti bjórinn – Hafnaði í fyrsta sæti í útboði Vinmonopolet í Noregi
Víking Gylltur, einn af vinsælustu bjórum landsins, hefur hlotið einstakan heiður með því að tryggja sér fyrsta sætið í útboði Vinmonopolet í Noregi. Þetta þýðir að frá og með 1. mars verður Víking Gylltur fáanlegur í 191 verslun Vinmonopolet í Noregi sem er ekki ósvipað og ÁTVR hér á Íslandi.
„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir okkur og skemmtileg tilviljun að þetta hitti akkúrat á bjórdaginn okkar.“
Segir Hlynur Björnsson vörumerkjastjóri Víking.
Útboðið hjá Vinmonopolet er afar krefjandi, en þar eru fjöldinn allur af bjórum metnir eftir ströngum gæða- og bragðgreiningum. Víking Gylltur var þar í fyrsta sæti sem þýðir að bjórinn fékk hæstu einkunn í bragði og gæðum og hafði betur gegn úrvalsbjórum frá öðrum löndum á Norðurlöndunum, að því er fram kemur í tilkynningu.
„það er alltaf gaman að vinna og Víking Gylltur er svo sannarlega vel að þessu kominn. Við leggjum mikið upp úr gæðum og Víking Gylltur er þekktur fyrir sín gæði og hefur um langa tíð áunnið sér hjörtu íslensku þjóðarinnar“.
Segir Hlynur.
Víking Brugghús hefur verið leiðandi í íslenskri brugghefð í yfir 85 ár og framleiðir fjölbreytt úrval af bjórum þar á meðal Einstök sem hefur notið vinsælda bæði innanlands og erlendis. Víking Gylltur er eitt af flaggskipum brugghússins og hefur sannað sig sem hágæða bjór.
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Markaðurinn5 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel14 klukkustundir síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði



