Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Tólf nemendur í matartækni hjá VMA

Birting:

þann

Tólf nemendur í matartækni hjá VMA

Nemendurnir tólf sem stunda nú nám í VMA á þriðju og síðustu önn í matartækni. Myndina tók Marína Sigurgeirsdóttir í staðlotu í VMA um liðna helgi.

Verkmenntaskólinn á Akureyri (VMA) hefur lengi menntað og útskrifað matartækna.  Ekki aðeins hafa nemendur í gegnum tíðina verið frá svokölluðu upptökusvæði skólans heldur hafa þeir komið af öllu landinu. Núna stundar tólf nemenda hópur þetta nám við skólann og er þessi vorönn 2025 sú þriðja og síðasta í náminu.

Eins og nafn námsins gefur til kynna er það fyrst og fremst ætlað fólki sem starfar við matvæli – hvort sem er í mötuneytum eða á veitingastöðum. Námið er lotunám, sem þýðir að það er kennt í fimm staðlotum á hverri önn og á milli lotanna vinna nemendur verkefni af ýmsum toga í gegnum Innu.

Marína Sigurgeirsdóttir, kennari við matvælabraut VMA, hefur yfirumsjón með matartæknanáminu í VMA og það hefur hún gert síðan 2007.  Nemendahópurinn sem hún kennir núna er sá áttundi í röðinni frá 2007. Hún áætlar að á þessum átján árum hafi VMA útskrifað á bilinu 80 til 100 matartækna.

Lotunámið í matartæknináminu er byggt upp á annars vegar fyrirlestrum og hins vegar verklegu námi. Um liðna helgi var ein af fimm slíkum lotum í náminu. Hópurinn hittist kl. 13 sl. föstudag og á laugardaginn var kennt til kl. 16.

Sem fyrr segir stunda nú tólf nemendur nám í matartækni við VMA. Einn þeirra hefur lokið grunndeild matvæla í VMA en aðrir hafa farið í gegnum raunfærnimat í SÍMEY og þannig komist inn í þetta nám. Til að fara í raunfærnimat þarf viðkomandi að hafa starfað að lágmarki í þrjú ár í mötuneyti eða veitingarekstri. Auk fagnáms í verklegum og bóklegum áföngum sem nemendur taka í lotum og fjarnámi VMA þurfa þeir að hafa lokið áföngum í íslensku, ensku og stærðfræði á öðru þrepi.

Eftir brautskráningu sækja matartæknar um leyfisbréf og þar með starfsréttindi sem matartæknar til landlæknisembættisins. Í því felst m.a. heimild til þess að bera ábyrgð á rekstri mötuneyta.

Nemendur í þessum tólf nemenda námshópi í matartækni eru af Eyjafjarðarsvæðinu – frá Dalvík, Ólafsfirði, Hrísey og Akureyri – og eru þeir allir starfandi í mötuneytum eða á veitingastöðum.

Nám í matartækni er einungis í boði í annars vegar VMA og hins vegar í Menntaskólanum í Kópavogi – MK.

Ef nægilega margir skrá sig bindur Marína vonir við að nýr námshópur geti hafið nám næsta haust.

Mynd: vma.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið