Viðtöl, örfréttir & frumraun
Stofnfundur SFV verður haldinn 24. mars á Grand hótel

Grand Hótel Reykjavík
Stofnfundur SFV verður haldinn 24. mars klukkan 15 á Grand Hótel (salur: Hvammur á jarðhæð)
Mynd: Smári / Veitingageirinn.is
Þér er hér með boðið til stofnfundar SFV sem verður haldinn 24. mars klukkan 15 á Grand Hótel (salur: Hvammur á jarðhæð).
Fæðingin hefur tekið töluverðan tíma en loksins eru kringumstæður réttar og við viljum hvetja ykkur til að mæta, það skiptir okkur öllu máli að fá góðan fjölda á fyrsta fund til að virkja samtakamáttinn !
Það verður líka hægt að taka þátt í gegnum Teams (sendið okkur nafn, fyrirtæki og netfang) en það er okkar einlæga von að sem flestir láti sjá sig.
Hvort sem hentar ykkur, vinsamlegast látið okkur vita um þátttöku til að tryggja rétta stærð á fundarsal.
Meðfylgjandi eru drög að stofnsamþykktum.
Dagskrá fundarins:
Ávarp fulltrúa undirbúningshóps
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Stofnsamþykktir bornar upp til samþykktar
Kosning formanns
Kosning stjórnar
Kjör endurskoðanda
Önnur mál
Við köllum eftir framboðum til formanns og stjórnar, þau fyrirtæki sem mæta munu teljast stofnfélagar samtakanna og hver fær eitt atkvæði til umráða.
Það er ýmislegt sem þarf að ræða en eitt er aðildargjald að samtökunum. Það mun verða ákveðið af nýrri stjórn en undirbúningshópurinn telur mikilvægt að því sé mjög stillt í hóf.
Mögulega að það séu þrjú bil sem eru veltutengd; 5.000 kr á mánuði, 25.000 kr á mánuði og 50.000 kr á mánuði.
Að okkar mati vantar samtökin aðallega talsmann/lobbíista og þá teljum við mikilvægt að félagsmenn hafi aðgang að lögfræðiráðgjöf tengda vinnumarkaðsmálum.
Gjöldin þurfa að standa undir þessum liðum.
Hlökkum til að sjá ykkur !
Kveðja
Birgir Örn
Hrefna
Emil
Björn
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar13 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð



