Uppskriftir
Smurbrauð fyrir sælkera – Nautatartar og smurbrauð með reyktri bleikju
Smørrebrød“ er brauð, yfirleitt rúgbrauð, sem hefur verið smurt með smjöri. Smurbrauð getur verið aðalréttur, hluti máltíðar eða smáréttur milli mála og er mikilvægur þáttur í danskri matargerð.
Við Íslendingar höfum fengið ýmislegt gott í arf frá frændum okkar en hér á landi er smurbrauðshefðin ágætlega þekkt. Smurbrauð varð til vegna þarfar til að neyta matar utan heimilis. Frá fornu fari þurftu smalar, bændur, veiðimenn og aðrir sem voru að vinnu langt frá heimilinu að taka með sér nesti og þá var handhægt að hafa með sér brauð og ýmiss konar álegg.
Ekki er neitt sér-danskt við slíkt nesti og það var ekki fyrr en í lok 19. öld að danskt smurbrauð varð til í þeirri sér-dönsku mynd sem það hefur í dag, þar sem áleggi er staflað á smurðar brauðsneiðar.
Nautatartar með graslauk, kapers og spánarkerfli
350 g nautalundir eða fitulítill lærvöðvi
2 stk. skalotlaukar
1 msk. kapers
½ pottur graslaukur
Extra virgin ólífuolía
Salt og svartur pipar
Skreytt með nýjum spánarkerfli og graslauksblómum
Graslauks majónes
2 eggjarauður
1 tsk. dijon sinnep
200 ml graslauksbætt repjuolía
2 msk. edik eða sítrónusafi
Smurbrauð með reyktri bleikju, grænkáli og rjómaosti
4 sneiðar rúgbrauð
100 g rjómaostur
200 g reykt bleikja
½ stk. rauðlaukur, smátt saxaður
10 stk. kapers
Svartur pipar
Grænkál eða rabarbari
100 ml repjuolía
2 tsk. gott edik
Snyrtu nautalundina og skerðu hana í fína teninga. Saxaðu skalotlaukinn, graslaukinn og kapersið fínt. Blandaðu öllu hráefninu saman í skál, bætið í olíu, salti og pipar og dijon sinnepi. Sprautið majónesið ofan á réttinn. Skerið brauðið í sneiðar. Setjið rjómaostinn í matvinnsluvél og þeytið hann lítillega (eða notið handþeytara) og setjið svo duglega af honum á brauðið.
Sneiðið bleikjuna þunnt og leggið ofan á rjómaostinn. Setjið rauðlauk og kapers yfir og myljið svo svartan pipar ofan á. Veltið grænkáli upp úr smá olíu og ediki og leggið ofan á. Saltið og piprið eftir smekk. Í stað grænkálsins er líka er hægt að kryddleggja ferska borða af nýjum rabarbara. Þá er gott að setja ögn af hunangi til að jafna sýruna í rabarbaranum.
Mynd og höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumaður
-
Frétt6 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel16 klukkustundir síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTímamót hjá Mat og drykk eftir áratug á Grandagarði
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun






