Frétt
Sjálfsskömmtun í mötuneytum – Minni matarsóun
Sóun matvæla er gríðarlegt vandamál, en um þriðjungur þess matar sem er ætlaður til manneldis í heiminum eða um 1.3 milljarðar tonna af mat á hverju ári í heiminum fer til spillis.
Fyrirtækið Skólamatur ehf í Reykjanesbæ sem rekur 22 mötuneyti á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu hóf í september s.l. sjálfsskömmtun og upplifun nemenda og starfsfólks eru afar góð. Við þetta fyrirkomulag hafa verið styttri raðir, minni matarsóun og meira að segja að nemendur vilja meina að maturinn bragðast hreinlega betur, svo ánægð eru þau.
Hjá Skólamat eru framleiddar um 7000 hádegismáltíðir og um 500 síðdegishressingar á dag og eru starfsmenn þess 70 talsins.
Í
úttekt sem gerð var fyrr á þessu ári í 9 eldhúsum mötuneyta grunnskóla í Hafnarfirði kemur fram að starfsmenn skólanna hafa mismunandi skoðanir á ágæti sjálfsskömmtunar. Einn taldi það til bóta og myndi minnka matarsóun. Annar taldi að það myndi auka matarsóun. Matráður í Hvaleyrarskóla vildi meina að töluvert minni mat væri hent en áður þegar starfsmaður skammtaði.
Mynd: úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni7 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg




