Markaðurinn
Samkeppni í mjólkuriðnaði
Garri hefur selt vörur frá Mjólku frá því þær fyrstu komu á markað. Fetaosturinn og sýrði rjóminn hefur fengið mjög góðar viðtökur frá viðskiptavinum Garra. Á þessum kröfuharða markaði hefur vörunum frá Mjólku verið tekið mjög vel og menn eru ákaflega ánægðir með að það skuli nú vera komin samkeppni á mjólkuriðnaðinum.
Veitingamenn hafa upp til hópa verið mjög viljugir að prófa vörurnar frá Mjólku og ekki minnkar áhuginn þegar þeir gera sér grein fyrir að þar er á ferðinni afurð frá einkaaðila sem freistar þess að halda upp samkeppni í mjólkuriðnaði á sama tíma og það stefnir í enn meiri samþjöppun í greininni.
Nú hefur bakararjómi bæst við vörulínu Mjólku og af því tilefni er hann á kynningarverði hjá Garra. Ef keyptur er einn kassi eða meira (sem eru 9 lítrar) kostar lítrinn 420 kr.með afslætti án vsk.
Endilega hafið sambandi við söluskrifstofu Garra og kynnið ykkur málið í síma 5700300.
Heimasíða: www.garri.is

Garri ehf. | Lyngháls 2 | 110 Reykjavík | Sími 5 700 300 | Fax 5 700 301 | [email protected]
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or17 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or21 klukkustund síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Frétt5 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila





