Markaðurinn
SalesCloud og Nágrannar hefja samstarf
Núna geta veitingastaðir og aðrir viðskiptavinir SalesCloud með einföldum hætti boðið upp á heimsendingar í samvinnu við heimsendingarþjónustuna Nágranna. Markmiðið er að matarpantanir séu komnar heim til viðskiptavina 15 mínútum eftir að þær eru tilbúnar.
Allir veitingastaðir sem eru með hugbúnað frá SalesCloud geta nýtt sér þessa þjónustu. Þá munu notendur markaðstorgsins Yess einnig njóta góðs af þessu.
Hugbúnaðarfyrirtækið SalesCloud hefur gert samning við fyrirtækið Nágranna um heimsendingarþjónustu þess síðarnefnda fyrir viðskiptavini SalesCloud og Yess.
SalesCloud býður upp á notendavænt sölukerfi í skýinu sem er meðal annars þróað og hannað með þarfir veitingastaða og smásölu í huga.
„Með þessu skrefi erum við að stíga inn í þróun markaðs heimsendingarþjónustu á Íslandi. Um er að ræða einfaldari og þægilegri leið til að bjóða upp á heimsendingar sem mun auðvelda viðskiptavinum okkar að veita framúrskarandi þjónustu.
Þessi einföldun verður til þess að veitingastaðir sem nýta sér okkar lausnir og þjónustu geta sett upp aðgang hjá Nágrönnum. Við bjóðum þeim einnig að setja upp svæði á appinu þeirra og heimasíðu, stöðunum að kostnaðarlausu. Eins er hægt að bjóða upp á heimsendingarþjónustu Nágranna þegar pantað er í gegnum heimasíðu veitingastaða eða í Yess appinu.
Kostnaðurinn við það síðastnefnda er kr 1200,- og greiðist af viðskiptavininum þegar pantað er. Við sjáum svo um að koma sendingarkostnaðinum í hendur Nágranna þannig að flækjustigið er ekkert fyrir veitingastaðina“,
segir Helgi Andri Jónsson stofnandi SalesCloud.
Nágrannar er nýtt og spennandi fyrirtæki sem býður upp á snögga og örugga heimsendingarþjónustu. Markmið fyrirtækisins er að sendingar séu komnar til viðskiptavina 15 mínútum eftir að þær eru tilbúnar.
„Við ætlum að efla vaxandi umhverfi fyrir heimsendingu hér á landi og leggjum mikla áherslu á, líkt og SalesCloud, að fara fram úr væntingum viðskiptavina með því að taka alltaf aukaskref þegar kemur að gæðum þjónustu. Við ætlum hreinlega að gera þetta að bestu heimsendingarþjónustu á Íslandi“,
segir Nicholas Steiner framkvæmdastjóri Nágranna.
Hægt er að panta í gegnum Yess appið og í gegnum heimasíður veitingastaðanna.
„Nágrannar deila sömu sýn og við hjá SalesCloud að því leyti að bæði fyrirtækin hafa mjög ríkan metnað þegar kemur að gæðum þjónustu. Við ættum því að ná að vinna vel saman.“
Segir Helgi Andri Jónsson, stofnandi SalesCloud að lokum.
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli
-
Markaðurinn5 dagar síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanC.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu
-
Starfsmannavelta1 dagur síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu



