Uppskriftir
Ribeye steik með parmesansósu og bökuðu grænmeti
Það er fátt betra en að gera vel við sig og sína með góðri steik og hér er ein góð uppskrift í safnið.
Aðalstjarnan hér er parmesansósan sem er örlítið frábrugðin þessum hefðbundnu rjómasósum sem maður er vanur, en hún smellpassar með kjötmiklu bragðinu af ribeye steikinni og ofnbakaða grænmetinu.
Sprotakál eða broccolini eins og það heitir á ensku fæst oftast í Costco og ég hef líka einstaka sinnum séð íslenskt sprotakál í Hagkaup, en það má líka bara nota venjulegt spergilkál í staðin.
Fyrir 2:
Ribeye, 2x 250 g
Kartöflur, 300 g
Gulrætur, 150 g
Sprotakál eða spergilkál, 200 g
Perlulaukur, 8 stk
Smjör, 50 g
Hvítlaukur, 3 rif
Hveiti, 2 msk / 15 g
Nautasoð, 250 ml
Rjómaostur, 30 g
Rjómi, 125 ml
Parmesan ostur rifinn, 12 g
Herbs de Provence, 1 tsk
Aðferð:
- Takið kjötið úr ísskápnum um 1 klst áður en á að elda það.
- Stillið ofn á 180 °C með blæstri.
- Skerið kartöflur í bita, gulrætur í bita/tvennt (fer eftir stærð og þykkt) og skrælið perlulaukana. Veltið grænmetinu upp úr olíu og salti og dreifið yfir ofnplötu með bökunarpappír. Bakið í miðjum ofni í 35-40 mín eða þar til kartöflurnar eru fallega gylltar og stökkar að utan en mjúkar að innan. Hrærið í þegar tíminn er hálfnaður.
- Bræðið smjör í potti við miðlungshita. Pressið hvítlauksrif út í smjörið hrærið í þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma, sirka 2 mín. Bætið hveiti út í pottinn og hrærið stanslaust í sirka 2-3 mín þar til hveitibolla hefur myndast. Pískið nautasoð hægt og rólega saman við hveitibolluna í pottinum og náið upp vægri suðu. Hrærið rjóma, parmesan, rjómaosti og Herbs de Provence saman við. Látið malla við vægan hita og smakið til með salti og ríflegu magni af svörtum pipar. Ef sósan þykkist of mikið má bæta við ögn af rjóma.
- Setjið vatn í pott með svolitlu salti og náið upp suðu. Skerið endana af sprotakálinu. Skerið spergilkál í bita ef það er notað í stað sprotakáls. Sjóðið í um 3 mín eða þar til kálið er mjúkt undir tönn.
- Nuddið kjötið með smá olíu og ríflegu magni af salti og svolitlum pipar.
- Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið steikurnar í 3-4 mín á hvorri hlið eða þar til kjötið hefur náð 55 °C kjarnhita fyrir medium rare. Þá er gott að notast við kjöthitamæli. Leyfið kjötinu að hvíla í um 5 mín áður en það er borið fram.
Mynd og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir

-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Nýr veitingastaður í Hafnarfirði – „Vel vandað til verka á Sydhavn“ – matreiðslumeistarinn Sigurður gefur topp einkunn
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðan
Ný kynslóð kjötiðnaðarmanna – Myndasafn af nemendum að störfum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
Vel heppnuð pop-up helgi á Eyju vínstofu & bistro: „Fólk tók einstaklega vel í seðilinn“
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Fastus – ein heild á ný
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Vorið kallar á nýsköpun og skapandi hugmyndir hjá Noma og MAD
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Yfirkokkur óskast á Fosshótel Húsavík – Executive chef Wanted at Fosshotel Húsavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun13 klukkustundir síðan
Aprílfundur KM: Veitingasvæði Ikea skoðað, mannúðarmál rædd og happdrætti til styrktar Myanmar bar góðan árangur – Myndir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Fyrsta 3D-prentaða kaffihúsið rís í Texas