Freisting
Reyna að svindla á gististöðum gegnum tölvupóst

Það hefur verið nokkuð áberandi síðustu daga að gististöðum hafa borist tölvuskeyti með bókunum, þar sem ætlunin er að svindla á viðkomandi stað og hafa af honum fé.
Upplýsingamiðstöðin á Hólmavík vill vara gististaði við slíkum erindum og birtir því dæmi um bréf frá William Harris sem barst í morgun. Gististað í nágrenninu barst síðan nákvæmlega eins bréf frá Albert Woods.
Pantað er í viku og spurt um kostnað. Eftir því sem næst verður komist er síðan borgað með stolnu korti eða bankaávísun sem langan tíma tekur að leysa út, en hætt við ferðina og beðið um endurgeiðslu áður en kemur í ljós að greiðslan er fölsk. Það fé er þá tapað.
Fleiri kúnstir til að svindla á saklausum ferðaþjónum sem svara eru reyndar.
Hello.
How is work today and the weather? I am Williams Harris.
Needing an accomodation for 2 couples on honeymoon. Arriving on 5th December,2007. DeParting on 12th December,2007.
If there is availability for the requested dates, reply to this mail with your rates and total cost for their stay. Hope you accept credit card for payment.
Kindest regards,
Williams.
Greint frá á Strandir.is
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn1 dagur síðanLíður að jólum
-
Pistlar1 dagur síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn15 klukkustundir síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember



