Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ragnar Ómarsson í nærmynd
Ragnar Ómarsson er án efa einn af okkar betri matreiðslumönnum hér á Íslandi, já og ef lengra væri leitað, því að Ragnar var fulltrúi Íslands í Bocuse d´Or 2005 og náði þeim feikna góða árangri að næla sér í 5. sæti. Hann hefur unnið á ýmsum veitingastöðum í Frakklandi og Bandaríkjunum.
Þegar heim var komið varð hann yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti og þess má geta að Holtið var einn af styrktaraðilum hans í Bocuse d´Or keppninni. Ragnar gekk i Landslið Íslands í matreiðslu árið 1999 og er ennþá virkur þátttakandi í sigursælustu landsliði hingað til. Ragnar hlaut titilinn Matreiðslumaður ársins árið 1999 og aftur árið 2002. Árið 2003 hlaut hann svo titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda.
Lagðar voru nokkrar spurningar fyrir Ragnar, sem hann svaraði með léttu yfirbragði, enda skemmtilegur karakter, líkt og sannur matreiðslumaður á að vera.
Fullt nafn?
Ragnar Ómarsson
Eiginkona?
Erla Snorradóttir
Börn?
María Lív Ragnarsdóttir (7 ára)
Bíll?
VW Golf 2004 módel (eðalvagn)
Hvar ertu að vinna núna?
SALT veitingarhús í gamla Eimskipshúsinu
Hvaða kokkar eru að vinna með þér?
Baldur Guðbjörns (Baldur bolla,,enn hann er í átaki,,, segir hann allavega!)
Jóhannes Jóhannesson (Jói hnefi)
Johan Andersson (Jói sænski)
Jónas Jónasson (jónas)
síðan fjórir nemar
Sáttur með launin?
Er maður einhvern tímann sáttur!
Hvar lærðir þú kokkinn?
Glóðinni í Keflavík
Hvað hét, fyrsta hnífasettið sem þú eignaðist?
Það var F.Dick-hnífar sem hafa horfið hægt og rólega,,,enn voru fínir þá!
Ætlarðu að opna þitt eigið veitingahús?
Veit ekki ,,,er nú búinn að prófa að reka eitt og skeit á mig.
Hvað er góður matur?
Allt það æta hráefni sem er rétt eldað, rétt kryddað og lítur vel út.
Uppáhalds Íslenski kokkur?
Kalli sem var kokkur á Glóðinni þegar ég var að læra og er nú eigandi á Móðir Náttúra, það kalla ég snilling í eldhúsi!!
Nú er Friðgeir Eiríksson næsti fulltrúi Íslands í Bocuse d´Or 2007, kemur þú til með að aðstoða hann?
Já að sjálfsögðu, ef hann hefur einhvern áhuga á að fá mann sem náði bara 5 sæti.til að hjálpa sér þá geri ég það
Hvaða stöðu gegnirðu í Kokkalandsliðinu?
Spilandi Landsliðsþjálfari, ásamt Bjarna í Grillinu
Hverjir eru í liðinu?
- Bjarni Gunnar Kristinsson, Grillið
- Ragnar Ómarsson, SALT
- Alfreð Ómar Alfreðsson, G.V heildverslun
- Sigurður Gíslason, VOX
- Gunnar Karl Gíslason, B5
- Eyþór Rúnarsson, Siggi Hall óðinsvéum
- Hrefna Rós Jóhannesdóttir Sætran, Sjávarkjallarinn
- Örvar Birgirsson, Nýja Kökuhúsinu
Aðstoðarmenn:
- Gunnlaugur, Sjávarkjallarinn
- Jónas Oddur Björnsson, VOX
Sérlegur ráðgjafi: Ásgeir Sandholt
Hvað er framundan hjá Kokkalandsliðinu?
Heimsmeistarkeppninn í Luxemborg í lok Nóvember og náttúrulega æfingarnar sem fara núna fram í Hótel og matvælaskólanum , þar sem við erum komin með flotta aðstöðu þar og erum í samstarfi við skólann.
Við þökkum Ragnari kærlega fyrir spjallið.
Myndartaka:
Freisting.is og
Bjarni G. Kristinsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Áætla um 100 matreiðslumenn og 50 framreiðslumenn að störfum í hátíðarkvöldverði KM
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Myndaveisla – Franski bakarameistarinn Remy Corbet Daniel Jean kynnti aldagamlar aðferðir við súrdeigs- og sætabrauðsbakstur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðan
Michelin veitingastaðnum Locanda Locatelli lokað eftir 23 ára starfsemi
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Vestfirði
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Nýtt útlit á Tanqueray nr.10
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Fagfélögin taka í notkun nýjar Mínar síður
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Allt fyrir Þorrablótin
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Ekta heimilismatur ofl. á góðu tilboði