Starfsmannavelta
Plantan Bístró hættir rekstri í Norræna húsinu í lok júlí
Plantan Bístró í Norræna húsinu mun loka dyrum sínum þann 30. júlí næstkomandi, samkvæmt tilkynningu frá eigendum staðarins. Kaffihúsið Plantan á Njálsgötu verður hins vegar áfram rekið óbreytt.
Plantan tók við rekstri veitingaaðstöðu í Norræna húsinu 1. febrúar 2025. Þar var boðið upp á árstíðabundinn plöntumiðaðan matseðil, heimabakað bakkelsi og sérkaffi, með áherslu á ferskt hráefni og skapandi matargerð.
Sjá einnig: Sónó flytur út og Plantan flytur inn
Í tilkynningu frá eigendunum segir að ákvörðunin hafi verið erfið.
„Eftir dásamlegt tímabil höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að Plantan Bístró í Norræna húsinu muni loka 30. júlí.“
Eigendurnir þakka jafnframt öllum þeim sem hafa heimsótt staðinn og stutt við reksturinn.
„Við erum ótrúlega þakklát fyrir alla gestina sem hafa heimsótt okkur, haldið með okkur og gert staðinn að því sem hann varð. Það hefur verið sannur heiður að vera hluti af þessu fallega umhverfi.“
Þá færa þau Norræna húsinu sérstakar þakkir fyrir samstarfið.
„Við viljum einnig færa Norræna húsinu okkar innilegustu þakkir fyrir frábært samstarf, traustið og hlýjar móttökur. Það hefur verið okkur sannkölluð ánægja að starfa þar.“
Fram að lokun verður áfram tekið á móti gestum af sama metnaði og áður og hvetja eigendurnir fólk til að líta við síðustu vikurnar.
Þau leggja jafnframt áherslu á að Plantan Kaffihús á Njálsgötu haldi áfram starfsemi sinni.
„Plantan Kaffihús á Njálsgötu verður áfram opið og við hlökkum til að taka á móti ykkur þar eins og alltaf.“
Plantan á Njálsgötu opnaði í maí 2022 og er í eigu þeirra Hrafnhildar Gunnarsdóttur, Bernódusar Óla Einarssonar og Júlíu Sif Liljudóttur. Kaffihúsið varð til út frá þeirri hugmynd að bjóða upp á vandaðan plöntumiðaðan mat og heimabakað bakkelsi úr ferskum hráefnum.
Norræna húsið hefur jafnframt þakkað Plöntunni fyrir samstarfið og hyggst nú leita að nýjum samstarfsaðila til að reka veitingastarfsemi í húsinu.
„Við erum innilega þakklát fyrir þeirra nærveru, hlýju og fagmennsku hér í húsinu og óskum þeim góðs gengis,“
segir í tilkynningu frá Norræna húsinu.
View this post on Instagram
Tengt efni:
-
Keppni6 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn2 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn3 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Markaðurinn3 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni



