Frétt
Ólöglegt varnarefni í kryddblöndu
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Lumpiang Shanghai Mix – Fried springroll seasoning mix kryddblöndu sem fyrirtækið Dai Phat Trading inc ehf. flytur inn. Ástæða innköllunar er að varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er óheimilt að nota í matvælaframleiðslu í Evrópu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Tilkynning um vöruna barst til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Mama Sita‘s
- Vöruheiti: Lumpiang Shanghai Mix – Fried springroll seasoning mix
- Best fyrir dagsetning: 22.11.2022
- Strikamerki: 4804888804998
- Nettómagn: 40g
- Framleiðandi: Marigold Manufacturing Corporation
- Framleiðsluland: Filippseyjar
- Innflytandi: Dai Phat Trading inc. ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
- Dreifing: Oriental Super Market (Dai Phat Trading inc ehf.), Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í verslun Dai Phat gegn endurgreiðslu.
-
Markaðurinn7 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Frétt4 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur




