Frétt
Ólöglegt varnarefni í hamborgarabrauði
Matvælastofnun varar við neyslu á Schnitzer lífrænu hamborgarabrauði sem Einstök matvæli flytja inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í brauðinu sem er ólöglegt að nota í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
Vöruheiti: Gluten-Free Organic Hamburger Buns
Best fyrir dagsetningar: 03.03.2021, 12.04.2021, 15.04.2021
Lotunúmer: 030321, 120421, 150421
Strikamerki: 402299345260
Nettómagn: 125 g
Framleiðandi: Schnitzer GmbH & Co.
Framleiðsluland: Þýskaland
Innflytjandi: Einstök matvæli, Lambhagavegi 13, Reykjavík
Dreifing: Verslanir Hagkaupa; Nettó Glerártorgi, Krossmóa, Mjódd og Granda; Heimkaup og Melabúðin.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki. Hægt er að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Mynd: aðsend
-
Markaðurinn6 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni1 dagur síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Frétt3 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn6 dagar síðanOktóbertilboð hjá Danól – kjötbollur og fjölbreytt meðlæti




