Smári Valtýr Sæbjörnsson
Ólaunaðar prufuvaktir notaðar til að svindla og spara kostnað
„Það eru allt of mörg dæmi um að fólk sé ekki að borga fyrir prufuvaktir og þetta er að verða stórt vandamál, sérstaklega í veitingageiranum,“
segir Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands í samtali við Fréttablaðið.
„Þetta er nýr kúltúr hjá svindlurum, við fórum að verða vör við þetta fyrir tveimur, þremur árum fyrst,“
bætir Halldór við. Ungt fólk og erlendir starfsmenn séu sérstaklega berskjaldaðir, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.
Fólk sem er fengið í svokallaðar prufuvaktir á lögum samkvæmt að fá greitt fyrir þær. Halldór segir dæmi um að staðir séu að spara sér launakostnað með því að hafa alltaf einn í prufu á vakt. Staðirnir boða þá alltaf nýja og nýja í prufuvaktir og greiða þeim ekki og ráða þá ekki í vinnu.
„Við höfum hjólað í þessi fyrirtæki af öllu afli. Svona dæmi geta jaðrað við skipulagða brotastarfsemi á réttindum. Þetta er praktíserað úti hjá launaþjófunum eins og við viljum gjarnan kalla þá.“
Halldór segir ASÍ setja aukið púður í átakið Ekkert svindl í sumar, sérstaklega gagnvart unga fólkinu, sem vinnur í skólafríum.
„Markmiðið með Ekkert svindl er að koma þessu áleiðis,“
segir Halldór.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 26. maí.
Mynd: úr safni
-
Frétt4 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Keppni1 dagur síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Bocuse d´Or12 klukkustundir síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?




