Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður opnar á Keflavíkurflugvelli – Bjarni Gunnar: „Já við vorum að opna Elda“
Nýr veit veitingastaður hefur verið opnaður á Keflavíkurflugvelli og er staðsettur beint á móti útganginum úr Fríhöfninni.
Staðurinn hefur fengið nafnið Elda og er áhersla lögð á gæði og gott hráefni. Maturinn er ferskur og fjölbreyttir kostir verða í boði fyrir alla; trufflu hamborgari, fiskur og franskar, kjötsúpa og bleikjusalat, svo dæmi séu tekin.
Á morgnana verða í boði léttari kostir; Egg Benedikt, pönnukökur með sírópi og Avocado Toast. Svo er Ísey skyrbar inni á staðnum sem verður alltaf opinn með ferskar skálar. Og fyrir þau sem eru á hraðferð verður alltaf gott úrval tilbúinna rétta til að grípa með sér.
Elda er í eigu SSP, alþjóðlegs fyrirtækis sem sérhæfir sig í rekstri veitingastaða á flugvöllum og rekur yfir 2.500 staði víða um heim.
„Já við vorum að opna Elda“
sagði Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumaður í samtali við veitingageirinn.is.
„Svo erum við að opna nýjan veitingastað á Keflavíkurflugvelli sem mun bjóða upp á glæsilegt smurbrauð ofl. sem verður staðsettur þar sem Joe The Juice var, en ég hef verið að starfa hjá SSP sem pre opening chef.
Svo tekur Ísak Darri við af mér með Gylfa Harðarssyni. Á SSP Iceland eru Jón Haukur Baldvinsson og Daníel Stefánsson við stjórnvölin.“
Sagði Bjarni, en hann starfaði áður sem yfirmatreiðslumaður Marriott hótelsins við Austurhöfn í Reykjavík.
Hönnunin á Elda er einstaklega falleg, með vísun í íslenska arfleifð og náttúru – og þægindi farþega í fyrirrúmi.
„Við erum virkilega stolt af matnum á Elda sem er gerður úr gæðahráefni. Þetta eru mikið til klassískir réttir en með íslensku hráefni. Svo leggjum við auðvitað mikið upp úr því að koma til móts við fjölbreytta hópa, við verðum t.d. með frábæra hraðþjónustu fyrir þau sem liggur á.
Þá verðum við með flotta grænmetis- og veganrétti og virkilega metnaðarfullan barnamatseðil. Við hlökkum mjög til að kynna Elda fyrir flugvallargestum,“
segir Jón Haukur Baldvinsson, rekstrarstjóri SSP á Íslandi.
Matseðillinn er mjög girnilegur
„Við erum mjög ánægð að hafa fengið SSP til liðs við okkur á Keflavíkurflugvelli. Elda er frábær viðbót við veitingaflóruna hjá okkur. Stór hluti farþega hefur verið að kalla eftir meiri gæðum og Elda svarar því kalli vel.
Matseðillinn er mjög girnilegur og því vert að mæta snemma í flug og gefa sér góðan tíma,“
segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga hjá Isavia.
Vídeó
Sindri Sindrason hjá Íslandi í dag fór til að sjá breytingarnar á nýrri Leifsstöð, en innslagið má sjá hér að neðan þar sem sjá má hvernig Keflavíkurflugvöllur hefur breyst.
Myndir: isavia.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Food & fun6 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn7 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn5 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanÆtti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?
-
Markaðurinn4 dagar síðanMinnkum matarsóun
-
Markaðurinn5 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Keppni2 dagar síðanHelga Signý sigraði í Barlady keppninni í annað sinn – Myndir










