Freisting
Nýr matsölustaður opnaður við Hafnargötu í Keflavík

Hjónin Mohamed Raafat Oda og Jóhanna Björg Þorsteinsdóttir hafa opnað nýjan veitingastað, sem ber nafnið Kairo og er staðsettur á Hafnargötu 30, við gatnamót Tjarnargötu í Keflavík.
Þau hjónin segja að með opnuninni hafi þeim tekist að láta langþráðan draum rætast en markmiðið sé að bjóða góðan mat á sanngjörnu verði og notalegan stað til að njóta hans á.
Ætlunin er að bjóða mest uppá mat í egypskum stíl, kebab, crépes, salöt, súpur o.fl. Í tilefni af opnuninni eru ýmis tilboð í gangi. Á næstu vikum er svo ætlunin að auka úrval rétta.
Kairó verður opinn í hádeginu og á kvöldin á virkum dögum frá kl. 11-14 og 17-22.
Um helgar verður lokað í hádeginu en í staðinn boðið upp á nætursölu.
Greint frá á vef Vf.is
Mynd: Víkurfréttir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?



