Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Myndir: Loksins og Bakað buðu í opnunarteiti á Keflavíkurflugvelli
Veitingastaðirnir Loksins Café & Bar og Bakað opnuðu nýlega veitingastaði á Keflavíkurflugvelli (KEF). Af því tilefni var öllu tjaldað til og boðið í teiti þar sem léttar veigar voru í boði fyrir góðan hóp gesta. Greinilegt var af andrúmsloftinu að vorið er loksins (!) komið og það var létt yfir gestum, sem skemmtu sér vel og fögnuðu saman nýjungum af ýmsu tagi.
Sjá einnig: Loksins bar opnaður í nýrri mynd á Keflavíkurflugvelli
Loksins Café & Bar opnaði nýverið í stærri stað í suðurbyggingu flugvallarins. Til viðbótar við gott úrval drykkja býður Loksins Café & Bar upp á fjölbreyttan matseðil með nýbökuðu handgerðu bakkelsi, morgunverðarskálum, salötum, fersku ciabatta og girnilegum heitum réttum.

Semjon Karopka, yfirmatreiðslumaður Loksins Café & Bar og Ágúst Einþórsson eða Gústi bakari, eigandi Bakað.
Bakað handverksbakarí hefur opnað á tveimur stöðum í KEF og þar sér Gústi bakari um vöruúrvalið. Á Bakað er meðal annars boðið upp á samlokur, pizzur, heilsusamlega safa, salöt, gómsætt bakkelsi og rjúkandi heitt gæðakaffi frá Te & kaffi.
Sjá einnig: Gústi bakari: „viðtökurnar hafa verið ótrúlega góðar“
„Við erum stöðugt að betrumbæta upplifun gesta flugvallarins, meðal annars með því að bæta við og uppfæra veitingastaði á vellinum. Loksins og Bakað hafa svo sannarlega slegið í gegn meðal gesta og það var ánægjulegt að fá að fagna með þeim.
Það er svo margt á dagskrá hjá okkur fyrir næstu mánuði og misseri og við hlökkum til að kynna þær nýjungar fyrir gestum þegar þar að kemur,“
segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga hjá Isavia.
„Það er búið að vera mjög gaman að opna aftur Loksins Café & Bar og sjá viðbrögð gesta við nýja matseðlinum. Það er alltaf ákveðin áskorun að hrista upp í einhverju sem fólk hefur þekkt mjög lengi, en nýju réttirnir og úrvalið í mat og drykk eru greinilega að höfða til gesta, eins og við vonuðumst til.
Þá tökum við líka eftir því að gestir kunna að meta þá áherslu sem við leggjum á íslenskt hráefni. Síðustu mánuðir hafa verið virkilega skemmtilegir, en núna hefst gamanið fyrir alvöru með sumartraffíkinni!“
segir Semjon Karopka, yfirmatreiðslumaður Loksins Café & Bar. Hægt er að skoða rétti staðarins hér.
Staðir Loksins og Bakað eru hannaðir af HAF Studio, en hönnunarstofan hefur undanfarin ár komið að hönnun fjölmargra veitingastaða og mathalla.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var vel mætt í boðið en DJ Danni Deluxe hélt uppi stemningunni með ljúfum tónum.
Myndir: Isavia.is

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Kokkur á miðunum: Guðmundur H. Helgason eldar fyrir áhöfn Breka VE – Fylgist með á Snapchat: Veitingageirinn
-
Keppni4 dagar síðan
Frábær árangur í Global Chef Challenge – Hinrik Örn og Andrés tryggja sér sæti í Global Chef Challenge 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Bolla sem kemur skemmtilega á óvart
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Góður matur, góð viðskipti: Þekktir veitingastaðir með gríðarlega veltu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Mötuneyti í nýju húsnæði Landsbankans fær Svansvottun
-
Keppni1 dagur síðan
Landslið íslenskra matreiðslumanna fær kraftmikinn stuðning frá Íslandshótelum
-
Keppni4 dagar síðan
Verður þú hraðasti og snyrtilegasti barþjónninn?
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Einstakt, dýrmætt og eftirsótt – Hvað gerir Masseto svo sérstakt?