KM
Myndir frá desemberfundi KM

Desemberfundur Klúbbs Matreiðslumeistara var haldin á Hilton Nordica Reykjavík Vox 1. desember síðastliðin. Mæting var klukkan 18:30 og þá skiptist hópurinn í tvennt en meðlimir héldu á stuttan fund á meðan makar löbbuðu yfir í Listhúsið til hennar Maríu Másdóttur hjá Blómahönnun þar hún sýndi þeim hvernig á að búa til fallegar jólaskreytingar.
Klukkan 19:30 safnaðist hópurinn aftur saman í fordrykk með smá góðgæti sem matreiðslumaður ársins hann Jóhannes Steinn Jóhannesson galdraði fram. Um 20°° leitið var sest inn í Vox þar sem snætt skyldi jólhlaðborð þeirra Vox manna, fyrri gesturinn hafði beðið um að fá að byrja en það var Hjálmar Jónson Dómkirkjuprestur en hann las upp úr bók sinn og fór með nokkra vísur, síðan var gengið til borðhalds.
Þegar allir höfðu fengið nægju sína í mat og drykk sté á stokk seinni gestur kvöldsins Sólmundur Hólm sem ritaði ævisögu Gylfa Ægissonar og las hann upp úr bókinni og flutti 2 lög þar sem líkti eftir Gylfa annars vegar og Pálma Gunnars hinsvegar.
Allir voru í skýjunum yfir vel heppnuðu kvöldi báðir gestirnir skemmtilegir og maturinn hjá Vox mönnum svíkur engann.
Fjöldinn var nálægt 70 manns og er það ánægjulegt að sjá svo marga mæta.
Smellið hér til að skoða myndir frá fundinum sem voru teknar af Guðjóni Steinsyni hirðljósmyndara KM.
Mynd: Guðjón Steinsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt5 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn1 dagur síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn2 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg



