Markaðurinn
MS breytir nöfnum á Fetaosti

Notkun á orðunum „Feti“ og „Feta“ verður hætt, og þess í stað verður notast við orðin salatostur, veisluostur og ostakubbur.
Mjólkursamsalan fékk bréf frá MAST fyrr í vikunni varðandi notkun á nafninu Feta á nokkrum vörum fyrirtækisins. Í bréfinu er farið fram á skýringar á notkun MS á fyrrgreindum orðum, en MS hefur til þessa boðið upp á osta undir vörumerkjunum FETA-kubbar, Dala-FETA og Salat-FETA.
Í bréfi MAST er vísað til þess að Feta-ostar frá Grikklandi njóti verndar sem skráð afurðarheiti í Grikklandi í skilningi ákvæða laga nr. 130/2014 um vernd afurðaheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
Í framhaldi af bréfinu hófst MS strax handa í samstarfi með auglýsingastofu að gera breytingar á vörumerkjum umræddra vara og umbúðum til samræmis. Þannig verður notkun á orðunum „Feti“ og „Feta“ hætt, og þess í stað notast við orðin salatostur, veisluostur og ostakubbur.
MS mun því alfarið hætta notkun á umræddum orðum til auðkenningar á vörum sem fyrirtækið framleiðir og selur, í samræmi við gildandi lagaákvæði og erindi MAST. Af umhverfissjónarmiðum mun MS þó óska eftir því við MAST að nota eldri umbúðir eins og kostur er þar til þær klárast.
Hér fyrir neðan má sjá drög að nýjum nöfnum og umbúðum fyrir umrædda osta:
-
Markaðurinn6 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Markaðurinn3 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Markaðurinn3 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi hæfileikar verðlaunaðir í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins 2026
-
Keppni3 dagar síðanLisa Dagnäs valin konditor ársins í Svíþjóð 2026



