Markaðurinn
Mjólkin er komin í jólabúning
Það vekur jafnan lukku þegar mjólkin frá MS fer í jólabúning og er því gaman að segja frá því að jólamjólkin er á leið í verslanir. Fernurnar prýða stórskemmtilegar jólasveinateikningarnar Stephens Fairbairn myndlistarmanns og hafa þær vakið óskipta athygli frá upphafi.
Á mörgum heimilum er vinsælt að klippa sveinana út og nota í föndur í aðdraganda jólanna en myndirnar af sveinunum góðu er líka að finna á vefnum jolamjolk.is.
Á vefnum má jafnframt finna litabók sem hægt er að prenta út og sitthvað fleira. Jólamjólkurumbúðirnar verða í verslunum landsins fram undir áramót.
-
Markaðurinn6 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Markaðurinn3 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Markaðurinn4 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn4 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi hæfileikar verðlaunaðir í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins 2026



