Vertu memm

Frétt

Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur

Birting:

þann

Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur

Matarvagn í eigu fyrirtækisins Mijita ehf. var nýverið stolið við Köllunarklettsveg 4 í Reykjavík. Vagninn hvarf á meðan eigendur fyrirtækisins voru á spítala að taka á móti nýfæddri dóttur sinni.

„Þessi vagn í eigu Mijita ehf. hvarf frá Köllunarklettsveg 4 á meðan við vorum að taka á móti nýfæddri dóttur okkar,“

segir Raffaele Manna, eiginmaður Maria Jimenez Pacifico og annar eigenda fyrirtækisins, í tilkynningu sem hann birti á Facebook.

Eigendur biðja fólk um að hafa augun opin fyrir vagninum, hvort sem er á sölusíðum eða í umferðinni.

Skráningarnúmer eða fastanúmer vagnsins er IOR83.

Allir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru hvattir til að hafa samband við lögreglu.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið