Viðtöl, örfréttir & frumraun
Maður Lifandi 5 ára
Á mánudaginn var er ég kom að norðan voru skilaboð frá ritstjóranum að crew 1 ætti að mæta í hádeginu á Miðvikudaginn hjá Manni Lifandi í Hlíðasmára og taka út matinn hjá þeim í tilefni af áðurnefnds afmælis.
Og að sjálfsögðu mættu við báðir og tókum cheffann tali en hann heitir Steinn Óskar Sigurðsson matreiðslumaður, hann segir að þegar hann kom að staðnum í upphafi hafi þetta verið rekið sem græn staður það er að segja eingöngu grænmeti en hann hafi fljótlega farið þá leið að vera með heilsusamlegt eldhús og bætt við kjúklingakjöti og fiski á matseðil staðarins og hefur það gefist vel og stækkað hóp fastagesta.
Spurði ég út í rétt sem ég hafði séð á matseðli hjá þeim, en það var plokkfisklasagna og sagði Steinn Óskar að sá réttu væri komin til að vera, það vinsæll væri hann.
Maður lifandi byrjaði í Borgartúni en er nú á þremur stöðum, það er Borgartúni, Hlíðarsmári og Hafnarborg í Hafnafirði, miðlægt eldhús er í Hlíðarsmára þar sem öll eldamennska fer fram.
Maturinn sem er á boðstólnum á hverjum degi skiptist í Súpu með gerlausu brauði, salatbar sem skiptis þannig að önnur hliðin er eingöngu hrámeti fyrir þá sem eru á hráfæði, en á hinni hliðinni eru unnir réttir og prótein, síðan er réttur dagsins, að auki er úrval í kæliskáp bæði vefjur, bökur, samlokur og hummus svo eitthvað sé nefnt.
Við smökkuðum á súpu dagsins sem var Spergikálsmauksúpa
Blöndu úr salatbarnum
Og rétt dagsins Glóandi kjúklingalæri bökuð í frumskógarkarrý, toppuð með gljáðum kasjúhnetum, jasmingrjónum og ananas-agúrku salati
Og ekki varð maður fyrir vonbrigðum frekar en endranær hjá Steini Óskari sem hefur safnað um sig góðu teymi sem er að gera frábæra hluti og er mér enn í fersku minni er KM var með félagsfund þar og maður heyrði hörðustu steikarmenn segja með sér já þetta er bara fjandi gott.
Mynd; Matthías Þórarinsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Ný vefbók fyrir matvælakennslu og áhugafólk um matreiðslu – Þér er boðið í útgáfupartý
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Koffmann er loksins fáanlegt á Íslandi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Matargestir ferðast aftur í tímann til villta vestursins – Myndir og vídeó
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðan
Fyrsti viðburður ársins hjá Kampavínsfjelaginu – 6 rétta matseðill með kampavíns pörun
-
Keppni20 klukkustundir síðan
Ertu lærður matreiðslumaður eða matreiðslunemi og langar til að komast í ungkokkalandsliðið?
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Uppskrift – Poke skál með kjúklingi og salatosti
-
Keppni4 dagar síðan
Graham’s Blend Series Kokteil keppni 2025
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Bóndadagurinn nálgast