Freisting
Leiðrétting vegna fréttar á Mbl.is

Rekstraraðili tveggja skemmtistaða í Reykjavík áréttar að rekstur þeirra gangi vel, nú þegar þeir séu aftur komnir í hendur upprunalegra eigenda. Félög fyrri eigenda hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta.
Við áttum staðina upprunalega og seldum þá svo 2007. Við fengum þá svo aftur í febrúar 2008 og erum því upprunalegir eigendur staðanna sem eru í fullri siglingu núna. Staðirnir ganga nú mjög vel, segir Arnar Þór Gíslason, eigandi og rekstrarstjóri Kúba ehf, sem sér um rekstur Café Oliver og Q bar.
Það var sami rekstraraðili með staðina sem fóru í þrot þegar þeir voru undir hans eignarhaldi.
Arnar Þór var á sínum tíma einnig eigandi skemmtistaðarins Barinn við Laugaveg sem var seldur í ágúst 2007.
Kúba ehf keypti staðinn aftur 2008, ásamt Café Oliver og Q bar.
Arnar Þór átti Barinn aðeins í einn dag og seldi hann þá aftur.
Arnar Þór segir upprunalegan eiganda Iðusala við Lækjargötu vera kominn aftur í reksturinn en félag um þann rekstur varð einnig gjaldþrota.
Leiðrétting vegna fréttar Mbl.is
Fjögur veitingahús í þrot
Af vef Mbl.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsland tók yfir eldhúsið á VOX þegar Sævar Lárusson og Rúrik mættu til leiks
-
Markaðurinn4 dagar síðanHættulega góðar ostakökukúlur með Biscoff og hvítu súkkulaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanKristján Örn matreiðslumeistari bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á Gran Canaria – Myndir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanSushi staðurinn Majó flytur starfsemi sína í Hof á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanMeistarakokkar færa sælkeramat í hillur Krónunnar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýtt bakarí í undirbúningi á Öskjureitnum á Húsavík
-
Markaðurinn2 dagar síðanRMK heildverslun: Opnunartími yfir hátíðarnar
-
Frétt3 dagar síðanAðskotahlutur í Bónus grjónagraut – Matvælastofnun varar við neyslu





