Freisting
Kvöldverður til stuðnings brjóstakrabbameins rannsóknum

Landnámssetrið í Borgarnesi
Ingibjörg Ingadóttir í Borgarnesi hefur ákveðið að gangast fyrir styrktarkvöldverði í Landnámssetrinu í Borgarnesi 18. september nk. vegna göngu sem farin verður til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini, en þetta kemur fram á Vesturlandavefnum Skessuhorn.is
Grískur andi mun svífa yfir vötnunum en matreiddur verður úrvals saltfiskur sem Byggðasafnið á Vestfjörðum hefur gefið Ingibjörgu til stuðnings verkefninu. Hægt verður að panta sér borð í Landnámssetrinu.
Ingibjörg sagði í samtali við Skessuhorn að hópur kvenna sem kallar sig einfaldlega Göngum saman hefði gengið til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini í göngu sem fram fór í Bandaríkjunum. Hópurinn samanstendur af konum, mæðrum, systrum og frænkum sem sjálfar hafa barist við krabbamein eða eiga góðar vinkonur sem hafa greinst með sjúkdóminn. Á síðasta ári fóru nokkrar konur frá Íslandi í þessa göngu en í ár ætla 23 konur. Gangan er 63 kílómetrar og tekur tvo daga. Við þurfum að greiða um 120 þúsund fyrir að taka þátt og rennur allt sem safnast á þennan hátt til rannsókna á brjóstakrabbameini.
Hópurinn vill einnig láta gott af sér leiða hér á landi og ætlar að styrkja íslenskar grunnrannsóknir um upphæð sem ekki verður lægri en það sem greitt verður fyrir gönguna úti. Við höfum verið að safna okkur fyrir þátttökugjaldinu á ýmsan hátt. Hluti af því er þessi gríski kvöldverður minn. Þótt málefnið sé grafalvarlegt þá verður ekki um neitt dapurt kvöld að ræða. Ásamt því að bjóða upp á góðan mat munu verða skemmtiatriði þannig að fólk ætti að eiga góða stund í Landsnámssetrinu næsta þriðjudagskvöld, sagði Ingibjörg.
Mynd: Skessuhorn.is
-
Frétt2 dagar síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSex nýir komust í hóp þeirra 299 sem bera virtasta titil vínþjóna í heiminum
-
Frétt6 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann
-
Frétt7 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt3 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur
-
Frétt2 dagar síðanPálmasykur frá Royal Orient innkallaður
-
Frétt2 dagar síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar


