Markaðurinn
Kökubæklingur Nóa Síríus 2021 er kominn í verslanir landsins
Kökubæklingur Nóa Síríus hefur verið ómissandi hluti af hátíðarundirbúningi þjóðarinnar í þrjá áratugi. Bæklingur þessa árs gefur þeim fyrri svo sannarlega ekkert eftir og er hann kominn í flestar verslanir. Það er Linda Ben sem sér um uppskriftirnar í ár en hún gaf einmitt út metsölubókina Kökur í fyrra og er eigandi uppskriftasíðunnar vinsælu Lindaben.is
„Við erum afar stolt af kökubæklingnum sem er fyrir löngu orðinn ómissandi í eldhúsum landsmanna og á mörgum heimilum markar útgáfa hans upphafið að undirbúningi hátíðanna,“
segir Alda Björk Larsen markaðsstjóri Nóa Síríus.
„Á hverju ári er lögð mikil vinna í bæklinginn og í ár er það engin önnur en Linda Ben sem sér um gómsætt úrval girnilegra uppskrifta. Það munu því eflaust margir bragðlaukar kætast við að prófa þessar fjölbreyttu og bragðgóðu uppskriftir,“
bætir Alda við.
Á rúmri hundrað ára vegferð Nóa Síríus með íslensku þjóðinni hafa vörur fyrirtækisins verið einstaklega vinsælar í bakstur. Sælkerabaksturs vörulínan er orðin mjög fjölbreytt en þar má finna vörur eins og Kakóduft, Trompkurl, Lakkrískurl, Karamellukurl og Rjómatöggur að ógleymdum nokkrum tegundum Súkkulaðidropa.
Að auki eru ýmsar aðrar vörur frá Nóa Síríus tilvaldar í baksturinn eins og sælkerabakarar þjóðarinnar hafa sannreynt á liðnum árum.
-
Keppni6 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni1 dagur síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar10 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




