Vín, drykkir og keppni
Japanskt gin sækir fram þrátt fyrir samdrátt í áfengissölu
Japanskt gin sækir í sig veðrið þrátt fyrir að alþjóðlegur áfengismarkaður hafi kólnað á undanförnum misserum. Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times, þar sem bent er á að sala á sterku áfengi hafi dregist saman árið 2025 og gin þar á meðal. Þróunin í Japan fer þó í gagnstæða átt.
Útflutningur á japönsku gini meira en tvöfaldaðist á síðasta ári og jókst um 104 prósent í verðmæti, upp í um 8,2 milljarða jena. Það jafngildir um 7,2 milljörðum íslenskra króna samkvæmt gögnum frá samtökum framleiðenda í Japan.
Ryan McFarland hjá dreifingarfyrirtækinu Drinksology Kirker Greer segir japanskt gin hafa ákveðið forskot á mörkuðum í Evrópu. Hann telur vöruna byggja brú milli menningarheima og vekja strax tilfinningu fyrir gæðum. Fyrirtækið á meðal annars vörumerkið Ukiyo sem framleiðir gin í Chiba héraði með hrísgrjónagrunn og hefðbundnum jurtum. Sala þess hefur vaxið hratt undanfarin ár og gert er ráð fyrir áframhaldandi aukningu.
Helstu markaðir eru í Bretlandi og á Írlandi þar sem vörurnar fást bæði í verslunum og á veitingastöðum. Þá stendur til að auka dreifingu enn frekar á alþjóðavísu með samningi við stóran fríhafnarrekstraraðila.
Ryan segir japanskt gin falla í flokk svokallaðs lúxus á viðráðanlegu verði. Neytendur geti leyft sér að færa sig upp um gæðastig án þess að kostnaður verði of mikill. Í efnahagslega krefjandi umhverfi sé það lykilatriði.
Hann telur jafnframt að japanskt gin sé að færast úr því að vera undirflokkur yfir í að verða sjálfstæður og mikilvægur hluti af barúrvali veitingastaða. Áhugi barþjóna á að nýta japanskar bragðtegundir fari vaxandi og gin sé í auknum mæli notað í kokteila frekar en eingöngu í klassískt gin og tonic.
Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun stendur greinin frammi fyrir áskorunum. Óstöðugt efnahagsástand, pólitísk óvissa og breytt neysluhegðun hafa dregið úr áfengisneyslu almennt. Þá bendir Ryan á að mikil velta í vöruframboði geri það að verkum að neytendur skipti hratt um vörur.
Til að mæta því leggja framleiðendur aukna áherslu á útlit og framsetningu. Markmiðið er að vekja athygli á hillum verslana og á börum og skapa þannig ný tækifæri á markaði sem annars hefur hægt á sér.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanArnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
-
Markaðurinn3 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSkandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Frétt16 klukkustundir síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt




