Markaðurinn
Íslenskir sælkeraostar á leið í verslanir
Úr hjarta Skagafjarðar koma nýir bragðmiklir gæðaostar sem fengið hafa nafnið Goðdalir, en nafnið er gamalt heiti yfir Skagafjarðardali. Ostarnir sem nú koma á markað heita Feykir, Grettir og Reykir en þeir eru ólíkir öðrum íslenskum ostum að því leyti að þeir eru allir búnir til í svokölluðum ostahjólum og síðan vaxbornir áður en þeir eru látnir þroskast í mislangan tíma.
Hvert ostahjól vegur um 15 kg sem síðan er handskorið og pakkað af natni þegar hver ostur hefur náð fullum þroska.
Feykir er bragðmikill ostur sem hefur þroskast í 12 mánuði eða lengur. Kringlótt lögun og vaxhjúpur eiga þátt í þroskun ostsins og gefa honum áferð og bragð þar sem kristallamyndun og sætukeimur mætast á einstakan hátt.
Grettir er sætur og stökkur ostur sem kemur skemmtilega á óvart. Sérstök geymsluaðferð gefur honum milt og ljúft bragð sem og flauelsmjúka áferð. Grettir er margslunginn ostur sem erfitt er að standast.
Reykir er einstakur og spennandi ostur sem búið er að kaldreykja með íslensku birki. Osturinn fær sérstakan lit og áferð við reykinguna til viðbótar við léttan reykjarilminn. Reykir ber keim af kjötmeti og því fylgir einkar kröftugt eftirbragð.
Nánari upplýsingar um ostana og hvernig þeir parast með mat og drykk er að finna á vefsíðunni goddalir.is
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu








