Vertu memm

Markaðurinn

Ísey skyr án viðbætts sykurs og sætuefna – skyrið sem beðið hefur verið eftir

Birting:

þann

Ísey ÁN

Ísey skyr kynnir til leiks tvær nýjar bragðtegundir án viðbætts sykurs og sætuefna en um er að ræða fyrstu íslensku mjólkurvöruna sem er einungis bragðbætt með ávöxtum. Nýja vörulínan kallast Ísey ÁN og mun til að byrja með samanstanda af tveimur bragðtegundum, annars vegar suðrænum ávöxtum og hins vegar perum og bönunum.

„Ísey ÁN er afrakstur langs og strangs vöruþróunarferlis innan MS, þar sem áhersla var lögð á að koma með vöru sem væri án alls sykurs og sætuefna, en jafnframt bragðgóða. Við teljum að það hafi tekist hér og erum mjög ánægð með árangurinn. Þessar vörur sem við getum nú boðið viðskiptavinum okkar upp á eru meðal þeirra fyrstu sinnar tegundar í heiminum,“

segir Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri Mjólkursamsölunnar og bætir við:

„Nýja skyrið er milt á bragðið þar sem sætan kemur eingöngu úr ávöxtunum sjálfum og 2% fituinnihald gerir skyrið mýkra en ella. Skyrið er jafnframt án laktósa, þar sem allur laktósi (mjólkursykur) hefur verið klofinn og ætti það því að henta öllum sem hafa laktósaóþol,“

Björn S. Gunnarsson

Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri Mjólkursamsölunnar með nýjustu viðbótina við Ísey skyr vörulínuna, Ísey skyr án viðbætts sykurs og sætuefna.

Mjólkurvörur eru ríkar af próteini, kalki, vítamínum og steinefnum og þrátt fyrir að sumar sýrðar mjólkurvörur innihaldi viðbættan sykur eru þær samt sem áður ríkar af þessum hollustuefnum. MS hefur unnið markvisst að því frá árinu 2004 að minnka hlutfall viðbætts sykurs í afurðum sínum og í dag eru um 85% af öllum vörum fyrirtækisins án viðbætts sykurs.

„Samkvæmt rannsóknum sem Embætti landslæknis hefur gert á neysluvenjum Íslendinga kemur 6% af þeim viðbætta sykri sem landsmenn neyta úr mjólkurvörum en við viljum að neytendur hafi val um hreinar, bragðbættar og kolvetnaskertar sýrðar mjólkurafurðir. Að því sögðu mun MS að sjálfsögðu vinna áfram að því næstu árin að auka gagnsæi um hollustu og innihald mjólkurvara og styðja við heilbrigt líferni neytenda,“

segir Björn að lokum.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið