Markaðurinn
Innnes kynnir nýtt app – Stórt skref á stafrænni vegferð
Innnes hefur sett á markað nýtt app sem einfaldar og hraðar pöntunum fyrir fagfólk í matvæla- og veitingageiranum. Með appinu styrkir Innnes stöðu sína sem leiðandi aðili á matvörumarkaði hvað varðar fyrsta flokks stafræna þjónustu við viðskiptavini.
Appið gerir fyrirtækjum kleift að panta vörur hvar og hvenær sem er, með fullu aðgengi að fjölbreyttu vöruúrvali Innnes. Notendur appsins geta skoðað pantanir, endurpantað vörur með einföldum hætti, vistað vörulista, og nýtt sér snjalla leit og strikamerkjaskanna til að finna réttu vörurnar á nokkrum sekúndum. Með tilkomu appsins erum við að færa okkur enn nær viðskiptavininum og spara honum fyrirhöfn við pantanir í amstri dagsins.
Eftir mikinn vöxt í vefversluninni sá Innnes tækifæri til að færa þjónustustigið enn nær daglegu starfi viðskiptavina sinna. Margir þeirra pöntuðu þegar í gegnum síma, en með nýju appi var hægt að stíga næsta skref, að bjóða upp á meiri hraða, betra aðgengi og sérhannað viðmót fyrir snjallsíma.
„Þetta er eðlilegt framhald af þeirri stafrænu vegferð sem við höfum verið á síðustu ár,“
segir Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes.
„Við viljum nýta tækni til að bæta þjónustu, auka skilvirkni og gera viðskiptavinum okkar kleift að sinna sínum innkaupum á einfaldan og öruggan hátt.“
Innnes hefur á undanförnum árum verið í fararbroddi í stafrænni þróun, með hratt vaxandi vefverslun og hátæknivöruhúsi sem hefur umbreytt afköstum og þjónustustigi. Appið byggir á sama tæknigrunni og vefverslunin og bætir við nýjum möguleikum á borð við tilkynningar og pöntun með skönnun strikamerkja.
„Tæknin er lykilatriði í samkeppnishæfni okkar,“
segir Magnús Óli.
„Appið er enn ein varðan á stafrænni vegferð Innnes – og markar tímamót í þjónustu við okkar viðskiptavini.“
Innnes appið er nú fáanlegt í App Store og Google Play.
-
Markaðurinn2 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel13 klukkustundir síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Frétt7 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans



