Viðtöl, örfréttir & frumraun
Hver er maðurinn? – Mónika: „Minn uppáhalds réttur á Apótekinu er túnfiskurinn“
Hver er maðurinn?, er fastur liður hér á veitingageirinn.is. Þar fá lesendur veitingageirans að fræðast meira um fagmanninn sem svarar spurningum. Viðmælandi okkar að þessu sinni er Mónika Sif Gunnarsdóttir yfirmatreiðslumaður á Apótekinu.
Mónika byrjaði í grunndeildinni í Menntaskólanum í Kópavogi árið 2016…
“ ég vissi í raun alltaf frá því að ég var lítil að mig langaði að vinna sem matreiðslumaður, og mér fannst grunndeildin vera mjög góð byrjun til að kynnast þessu námi.“
Mónika byrjaði snemma sem nemi eftir grunndeildina, en hún lærði fræðin sín á Tapas Barnum og vann þar frá 2017 til 2019 og færði sig yfir á Apótekið til að geta klárað samninginn sinn. Mónika lauk svo sveinsprófinu um jólin 2020 og var þá stuttu eftir það boðið að leysa af yfirmanns-stöðunni í Pastry á Apótekinu í ár. Eftir það, árið 2021, var henni svo boðin staða yfirkokks í eldhúsinu þar sem Aron, fyrrverandi yfirkokkur, var að fara að opna Tres Locos. Mónika er núna í meistaranámi.
Uppáhalds rétturinn þinn á Apótekinu?
Minn uppáhalds réttur á Apótekinu er túnfiskurinn – léttgrillaður túnfiskur með amarío sósu, avocado mauki, sýrðri vatnsmelónu og ponzu dressingu. Hann er léttur og ferskur og rosalega fallegur.
Hverjir eru helstu veikleikar þínir í starfinu?
Minn helsti veiklegi er að ég hef stundum litla trú á mér og hvað ég get gert.
Hvað er mest notað í eldhúsinu þínu?
Án efa hnífurinn.
Ef þú gætir ekki unnið í veitingabransanum hvað værir þú þá að gera?
Ef ég gæti ekki unnið í veitingageiranum, þá væri ég örugglega að vinna í einhverri sköpunarvinnu, eins og fatahönnun, arkitekt eða sem vöruhönnuður.
Hefur þú tekið þátt í fagkeppnum?
Ég tók einu sinni þátt í eftirréttur ársins, það var mjög skemmtileg reynsla.
Hver er uppáhalds fagmaður þinn í veitingabransanum á Íslandi og af hverju?
Uppáhalst fagmaðurinn minn í veitingageiranum er Carlos Horacio Gimenez sem er einn af eigendunum á Apótekinu. Hann hefur kennt mér svo margt og hefur svo mikla trú á mér og hann vill að ég læri allt sem hann getur kennt mér. Hann gefur sér góðan tíma að kenna mér og einnig öllum í eldhúsinu, hvernig á að nýta hlutina og vinna með mikið af hráefnum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Keppni5 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Markaðurinn3 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Starfsmannavelta17 klukkustundir síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Markaðurinn4 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Markaðurinn4 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Frétt18 klukkustundir síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið






