Uppskriftir
Heimagerðir Kleinuhringir

Bestir volgir og þá kannski með flórsykri sigtuðum yfir, eða þeir eru látnir kólna og þykkum glassúr dreypt yfir. Þeir eru samt alltaf langbestir nýsteiktir.
Hráefni:
200 ml mjólk eða vatn
1 1/2 msk þurrger
3 msk sykur
3 egg
50 g lint smjör
1 tsk vanilludropar
Rifinn börkur af 1 sítrónu
550 g hveiti
steikingarfeiti
Aðferð:
Vökvinn velgdur þar til hann er nálægt 37°C og hellt í skál. Gerið sett út í ásamt 1-2 tsk af sykri og látið standa þar til gerið er farið að freyða. Þá er afgangurinn af sykrinum settur út í ásamt eggjum, smjöri, bragðefni og hluta af hveitinu.
Hrært vel og meira hveiti bætt út í smátt og smátt, þar til deigið er vel hnoðunarhæft og klessist ekki við hendur en er þó fremur lint. Hnoðað vel, mótað í kúlu, sett í hveitistráða skál og látið lyfta sér við stofuhita í 30-45 mínútur.
Þá er það slegið niður og flatt út í 1 cm þykkt, eða tæplega það.
Hringir stungnir úr því (8 cm þvermál) og afskurðinum svo hnoðað saman í kúlu sem er flött út og fleiri hringir stungnir út – það ættu að verða u.þ.b. 14-18 hringir úr deiginu. Raðað á bökunarpappírsörk og látnir lyfta sér á meðan feitin er hituð.
Þegar feitin er 180-190°C eru kleinuhringirnir settir gætilega út í, 3-5 í senn eftir stærð steikingarpottsins, og steiktir í 1 1/2-2 mínútur á hvorri hlið (þurfa reyndar oftast heldur styttri tíma þegar búið er að snúa þeim). Teknir upp með gataspaða og látið renna af þeim á bökunarpappír.
Bestir volgir og þá kannski með flórsykri sigtuðum yfir, eða þeir eru látnir kólna og þykkum glassúr dreypt yfir. Þeir eru samt alltaf langbestir nýsteiktir.
Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari
-
Markaðurinn6 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni23 klukkustundir síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn7 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Frétt3 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur



