Keppni
Graham’s Blend Series Kokteil keppni
Seinni útgáfa af barþjónakeppninni Graham’s Blend Series Cocktail Competition verður haldin 28. febrúar næstkomandi á Tipsý.
Sjá einnig: Sævar Helgi sigraði í fyrri útgáfu Graham’s Blend Series
Sigurvegaranum úr hverri landskeppni verður boðið til Porto í maí/júní nk til að keppa í heimsúrslitum, sjá allar upplýsingar hér, munið innsendingar, en frestur er 23. febrúar sem sendist á netfangið [email protected]
Innsending þarf að innihalda;
- Nafn á kokteil, mynd og stutta lýsingu á hugmyndinni.
- Uppskrift þar sem ríkjandi innihaldsefni af annað hvort Graham’s Blend Nº5 White Port eða Blend Nº12 Ruby Port
- Nafnið þitt, vinnustaður og símanúmer.
10 bestu uppskriftinar verða valdar til að keppa til úrslita ef til þess þarf.
Gustavo og Nuno Silva vínsérfræðingar á vegum Symington fjölskyldunnar verða á svæðinu.
Um Graham’s Blend Series
Blend Nº5 White er fyrsta hvíta Graham´s Portvínið sem er sérstaklega búin til að blanda við aðra drykki, einstakt með Tonic og jú allveg frábært eitt og sér, kælt. Léttari, ávaxtaríkt, líflegri og ferskari en önnur hvít Port á markaði.
Blend Nº12 Ruby er líka búið til að blanda við aðra drykki, Spritz útgáfur vinsælar með þessu Portvíni. Aðgengileg blanda fyrir nýja neytendur. Ferskari og arómatískari en önnur Ruby Port, köld gerjun og vínberin eru tínd á kvöldin frá víngörðum í hæstu hæðum í Douro dalnum til að halda í ferskaleika þessa Portvíns.
Viltu vita meira um Portvín ? kíktu á þessa síðu www.schoolofport.com
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
100 myndir frá hátíðarkvöldverði KM
-
Keppni5 dagar síðan
Þessir veitingastaðir og Íslendingar eru tilnefndir til BCA 2025 – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Fyrsta heildstæða kennsluefnið í matreiðslu gefið út eftir 70 ára kennslusögu – Myndir frá útgáfuteitinu
-
Keppni5 dagar síðan
Ertu lærður matreiðslumaður eða matreiðslunemi og langar til að komast í ungkokkalandsliðið?
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Uppskrift – Rjómalöguð tómatsúpa og grillað ostabrauð
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðan
Reynir Grétarsson matreiðslumeistari með áhugavert fræðsluerindi um súkkulaðigerð – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift – Mozzarella fiskréttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Hótel og heilsulind Bláa Lónsins á meðal 10 bestu hótelum heims – Michelin