Uppskriftir
Gráfíkjuterrine
Þetta er dálítið sérstakur eftirréttur en mjög góður.
Innihald:
375 ml Rauðvín
100 gr pistasíuhnetur
50 gr saxaðar valhnetur
50 gr sykur
60 ml brandy
600 gr gráfíkjur
12 stk matarlímsblöð
Safi og börkur af 2 appelsínum
Aðferð:
1. Hreinsið gráfíkjurnar með því að skera stilkinn af og skerið þær síðan í tvennt.
2. Setjið allt saman í pott nema matarlímið.
3. Sjóðið í 10 mín og takið af hitanum.
4. Bleytið upp matarlímið og bætið útí.
5. Klæðið form með plastfilmu og setjið gráfíkjurnar í.
6. Kælið í 10 klst. og framreiðið með Sabayonnesósu.
Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn4 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn4 dagar síðanVillibráðarpaté með landsliði kjötiðnaðarmanna
-
Markaðurinn5 dagar síðanBakarameistari Bakels heimsækir Ísland og heldur bakaranámskeið
-
Keppni5 dagar síðanStyttist í stóru stundina hjá Kokkalandsliði Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanEin máltíð sem breytti öllu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÁhugaverð grein um fagmennsku í veitingarekstri



