Vertu memm

Frétt

Græn skref – Snertir á fjölmörgum umhverfisþáttum mötuneytisreksturs

Birting:

þann

Mötuneyti

Í tilefni af nýútgefnum leiðbeiningum fyrir mötuneyti um minni umbúðanotkun og matarsóun boðar Umhverfisstofnun til málþings um umhverfisvænni mötuneyti. Málþinginu verður streymt í gegnum Teams þann 10. maí kl. 14:00 og snertir á fjölmörgum umhverfisþáttum mötuneytisreksturs.

Hlekkur á streymi

Við hjá Umhverfisstofnun höfum fengið til liðs við okkur góðan hóp fyrirlesara og við hvetjum alla sem koma að rekstri mötuneyta á einn eða annan hátt til að nýta tækifærið, hlýða á erindi og spyrja spurninga að kynningum loknum.

Sjá einnig: Tékklisti kokksins

Dagskrá

14:00 Nýjar leiðbeiningar Umhverfisstofnunar um minni matarsóun og umbúðanotkun

Kristín Helga Schiöth og Ásdís Nína Magnúsdóttir, sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis.

14:10-14:20 Heilsusamlegt mataræði hagstætt umhverfinu

Anna Sigríður Ólafsdóttir, doktor í næringarfræði og prófessor við deild Heilsueflingar íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði HÍ.

Anna Sigríður mun fjalla um heilsusamlegt mataræði sem er hagstætt umhverfinu. Sífellt meiri áhersla er lögð á að umhverfissjónarmið og heilsusamlegt fæði fari saman og hvaða skref er æskilegt að taka. Í erindinu verður horft til nýrra niðurstaðna á mataræði Íslendinga, rannsókna á mataræði í skólamötuneytum og farið yfir þróun ráðlegginga sem færast stöðugt meira í átt að umhverfissjónarmiðum, þar á meðal norrænar ráðleggingar, vistkerafæði og vegan valkostir.

14:20-14:30 Áherslur Matvælaráðuneytisins og stefnumótun um matvælaframleiðslu Íslands

Sigurður Eyþórsson, sérfræðingur við Matvælaráðuneytið.

Sigurður mun m.a. kynna áherslur ráðuneytisins og vinnu við stefnumótun um matvælaframleiðslu. Sú stefna miðast að því að framleiðslan styðji enn frekar við loftslagsmarkmið landsins, sjálfbæra nýtingu á auðlindum til lands og sjávar og dragi úr neikvæðum umhverfisáhrifum, bæði í frumframleiðslu og vinnslu matvæla.

14:30-14:40 Svansvottað mötuneyti – Reynslusaga

Ríkharður Gústavsson, deildarstjóri og yfirmatreiðslumeistari Íslandsbanka og Ásgeir Ólafsson, sérfræðingur rekstrarþjónustu Íslandsbanka.

Ríkaharður og Ásgeir munu fjalla um reynslu sína í því að reka Svansvottað mötuneyti, en mötuneyti Íslandsbanka hlaut Svansvottun í byrjun síðasta árs. Við Svansvottun veitingareksturs er m.a. lögð áhersla á að lágmarka vatnsnotkun og innleiða orkusparandi aðgerðir, litið er til sjálfbærni og kolefnisspors matvæla, gripið er til markvissra aðgerða til að draga úr matarsóun, takmarka umbúðanotkun og einnota vörur og úrgangur er flokkaður.

14:40-14:50 Umhverfisvænt mötuneyti – Upplifun neytenda

Kolbrún Ýrr Bjarnadóttir íslenskukennari og meðlimur í Umhverfisnefnd Menntaskólans á Akureyri (MA).

MA tekur þátt í Grænum skrefum í ríkisrekstri þar sem horft er til þeirra neikvæðu umhverfisáhrifa sem rekstur mötuneyta getur haft í för með sér. Ein árangursríkasta leiðin til að draga úr losun tengdri matvælum er að auka hlut matvæla úr plönturíkinu í fæðu okkar. Það hefur mötuneyti MA svo sannarlega gert, en þar er boðið upp á grænmetis eða grænkerafæði alla daga. Kolbrún Ýrr mun ræða hvernig viðtökur hafa verið meðal starfsfólks og reynslu sína sem neytandi í grænmetismiðuðu mötuneyti.

14:50-15:00 Opið fyrir spurningar

Fyrir hverja?

  • Alla sem koma að rekstri mötuneyta, starfsfólk og stjórnendur
  • Starfsfólk veitingastaða og stærri eldhúsa
  • Starfsfólk hótela
  • Nemendur í matreiðslu og framreiðslu
  • Sveitarfélög sem reka skólamötuneyti
  • Notendur mötuneyta

Teymi hringrásarhagkerfis Umhverfisstofnunar stendur fyrir viðburðinum og er honum ætlað að auðvelda mötuneytisþjónustum við að draga úr matarsóun og umbúðanotkun. Athygli er vakin á því að þrátt fyrir að málþingið miði fyrst og fremst að mötuneytum getur það einnig hentað sveitarfélögum sem reka skólamötuneyti, veitingastöðum, hótelum og öðrum sem koma að veitingaþjónustu.

Tengd skjöl:

Mynd: úr safni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið