Markaðurinn
Gleðilegan Ostóber!
Upp er runninn október en þriðja árið í röð heldur Mjólkursamsalan mánuðinn hátíðlegan undir yfirskriftinni Ostóber – tími til að njóta osta. Ostóber er tími til að fagna gæðum og fjölbreytileika í íslenskri ostagerð og vill MS með þessu framtaki hvetja landsmenn til borða sína uppáhaldsosta, smakka nýja og prófa sig áfram með ostana í matargerð. Hvað er betra en að hafa það huggulegt heima í skammdeginu, kveikja á kertum og gæða sér á íslensku ostagóðgæti?
Á gottimatinn.is er að finna heilan hafsjó af uppskriftum þar sem íslenskir ostar koma við sögu og ber þar hæst að nefna uppskriftir með Óðalsostum, Dalaostum, rjómaostum og rifnum ostum, en nýverið bættust í safnið uppskriftir sem innihalda Goðdala ostana Feyki, Gretti og Reyki sem eru sælkeraostar úr Skagafirði. Það mun allt iða af lífi á samfélagsmiðlum og geta heppnir fylgjendur Gott í matinn á Facebook tekið þátt í laufléttum leik og unnið veglegar gjafakörfur með úrvali af íslenskum ostum frá MS.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með á næstunni þegar við kynnum sérstaka Ostóber osta sem framleiddir voru sérstaklega fyrir þetta tilefni en þangað til er upplagt að byrja hátíðarhöldin á spennandi uppskrift að ostaídýfu þar sem Óðalsostarnir Cheddar og Búri eru í aðalhlutverkum.
Heit ostaídýfa með Cheddar og Búra
1 msk. ólífuolía
1 laukur
1 rauð paprika
½ græn paprika
Jalepeno pipar, magn eftir smekk
200 g hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
300 g Cheddar
150 g Búri
1-2 dl mjólk, magn eftir smekk
Salt og pipar, magn eftir smekk
Kóríander, magn eftir smekk
Nachos flögur
Aðferð:
- Hitið olíu á pönnu eða í potti.
- Skerið niður lauk, paprikur og jalepeno afar smátt og steikið upp úr olíunni í 1 – 2 mínútur eða þar til laukurinn er orðinn glær og mjúkur í gegn.
- Bætið rjómaostinum saman við og hrærið.
- Rífið niður Cheddar og Búra og bætið út í pottinn, hrærið stöðugt og bætið mjólk smám saman við eða þar til þið eruð ánægð með þykktina á ídýfunni.
- Bragbætið ídýfuna með salti og pipar.
- Skerið niður kóríander og dreifið yfir í lokin og berið fram með nachosflögum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni1 dagur síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Markaðurinn1 dagur síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt2 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt3 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020




