Vertu memm

Markaðurinn

Fritz-Kola lendir á Íslandi og stefnir beint á barina

Birting:

þann

Það gerist ekki á hverjum degi sem gosdrykkur með sterkan karakter lendir á Íslandi. Þýska vörumerkið Fritz-Kola er nú komið til landsins og stefnir beint inn á veitingastaði, bari og kaffihús.

Fritz-Kola var stofnað árið 2003 í Hamborg af tveimur vinum sem vildu gera hlutina öðruvísi. Í dag hefur vörumerkið náð sterkri stöðu víða í Evrópu, sérstaklega á stöðum þar sem áhersla er lögð á upplifun.

„Við höfum verið að leita að drykkjum með sérstöðu sem passar fyrir veitingageirann,“

segir Sólrún Reginsdóttir viðskipta- og vörumerkjastjóri hjá Nathan.

„Þetta er drykkur sem tekið er eftir, bæði vegna bragðsins og útlitsins.“

Fritz-Kola er þekkt fyrir hreint og kraftmikið bragð ásamt hærra koffíninnihaldi en mörg eiga að venjast. Vörulínan spannar klassískt kóla, sykurlausa útgáfu og límónaði með sítrónu og appelsínu, sem gerir stöðum kleift að bjóða upp á fjölbreytta og áhugaverða drykkjarseðla.

„Það sem heillar okkur mest er hvað vörumerkið hefur náð að byggja upp sterka ímynd án þess að verða of massað,“

segir Sólrún.

„Það er eitthvað við það sem passar mjög vel fyrir íslenskan markað.“

Á Íslandi verður áherslan fyrst og fremst á veitingageirann, þar sem Fritz-Kola passar vel inn á matseðla og sem valkostur fyrir þau sem vilja eitthvað annað en hefðbundin gosmerki.

Fritz-Kola er þegar byrjað að rata inn á valda staði og mun verða sýnilegra á næstu vikum. Hér er ekki bara nýtt gos á ferðinni, vörumerki með sterka ímynd og og karakter.

Skoðið vöruúrvalið hér.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið