Freisting
Framkvæmdum að ljúka við byggingu tveggja 65 metra hárra turna við Grand hótel Reykjavík

Iðnaðarmenn eru að leggja síðustu hönd á nýbyggingu Grand hótels Reykjavíkur við Sigtún. Herbergin í háhýsunum tveimur hafa smám saman verið tekin í notkun í sumar.
Húsið fær góða reynslu af íslenskri haustlægð þessa dagana og voru iðnaðarmenn í rigningunni í gær að fara yfir glerþök og ganga frá ýmsum málum. Hótelið verður síðan opnað formlega eftir þessa miklu framkvæmd í næsta mánuði.
Kaupgarður, fyrirtæki Ólafs Torfasonar hótelstjóra, keypti Grand hótel við Sigtún á árinu 1995 og fékk til liðs við sig Guðmund Jónasson ferðaskrifstofu við kaupin. „Það lá þá þegar fyrir að það þyrfti að fjölga herbergjum. Ráðstefnuaðstaðan var ágæt og við raunar gengum í það að stækka hana,“ segir Ólafur þegar hann er spurður um aðdraganda nýbyggingarinnar. Í upphafi var ætlunin að stækka um 100 herbergi með byggingu lágreistra húsa um alla lóð. Fékkst samþykki skipulagsyfirvalda fyrir því. „Við sáum þó að þetta var of dýrt og að við þyrftum fleiri herbergi til að reksturinn yrði fýsilegur og því lögðum við þessi áform á hilluna.“
Síðar komu upp hugmyndir um að reisa háhýsi á lóðinni. Fyrst voru lagðar fram teikningar af 24 hæða byggingu en áformin þróuðust síðan út í tvo samtengda hótelturna, 13 til 14 hæða, sem tengdir yrðu eldri byggingu hótelsins með glerbyggingu. Segir Ólafur að þau 208 herbergi sem bætast við séu litlu dýrari en þau 100 herbergi sem fengist hefðu með lágreistum byggingum um alla lóðina. Þá fáist að öllu leyti betri aðstaða fyrir gestina, bílastæði og þjónusturými.
Það var Helgi Bjarnason sem skrifaði þennann pistil
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.
Greint frá á Mbl.is
Mynd: Heimasíða iav.is | [email protected]
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Keppni3 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn7 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði
-
Frétt7 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn5 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt4 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn4 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi


