Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Fjölgun matarvagna heldur áfram | Finsens fish & chips í Stykkishólmi
Í júní hóf veitingavagninn Finsens fish & chips starfsemi sína á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi. Hann vekur athygli fyrir að vera nýjung í veitingaflóru, bæði í Stykkishólmi en einnig á Vesturlandsvísu. Þetta er fyrsti, og enn sem komið er að minnsta kosti, eini vagninn sem selur fisk og franskar og sérhæfir sig í sölu á slíkum mat, að því er fram kemur á vefnum skessuhorn.is.
Þetta er reyndar mjög þekktur réttur víða erlendis, ekki síst á Bretlandseyjum og víðar í Evrópu. Hjá Bretum kallast þetta „fish and chips“ og er hefur allt frá 19. öld verið vinsæll skyndibiti þar.
Það eru þau Bjarki Hjörleifsson og Jónína Riedel sem eiga og reka Finsens-vagninn. Fyrir eiga þau og reka pítsustaðinn Stykkið.
Við erum búin að ganga með þá hugmynd nokkuð lengi að vera með eitthvað meira en Stykkið. Okkur langaði til að bæta við flóruna í veitingarekstri hér í Stykkishólmi og gera það á einfaldan máta. Fyrst héldu allir að ég væri að grínast þegar ég talaði um hugmyndina um að koma á fót veitingavagni sem seldi fisk og franskar. Margir skynjuðu fyrst að okkur væri alvara þegar við vorum búin að kaupa þennan vagn og koma honum fyrir hérna á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi,
segir Bjarki í samtali við skessuhorn.is.
Það voru fregnir af velgengni í rekstri sams konar veitingavagns á Húsavík sem fékk þau Bjarka og Jónínu til að gera alvöru úr hugmyndinni.
Ég heyrði fregnir af manni sem hafði tekið upp á því að selja fisk og franskar við Húsavíkurhöfn. Það gengi víst alveg stórvel. Þá ákváðum við að láta vaða. Við fengum stöðuleyfi hjá bænum og pöntuðum vagninn. Hann er nýsmíði frá fyrirtæki í Reykjavík. Það tók hins vegar tíma að fá hann tilbúinn og merktan eins og við vildum hafa hann. Þess vegna opnuðum við tiltölulega seint í sumar,
útskýrir Bjarki en Finsens opnaði 26. júní síðastliðinn.
Greint frá á skessuhorn.is.
Nýir matarvagnar hafa aukist mikið síðastliðin misseri, en hægt er að lesa fleiri umfjallanir af matarvögnum með því að smella hér.
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn5 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni2 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Frétt3 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn



