Freisting
Finnar auka lífslíkur sínar með minni saltneyslu
Sænskir næringarfræðingar hafa áhyggjur af saltneyslu þjóðarinnar sem er að meðaltali um 12 til 13 grömm á dag og horfa öfundaraugum til nágranna sinna í Finnlandi þar sem saltneysla hefur verið helminguð á síðast liðnum 30 árum, úr 14 niður í 8 grömm.
Finnar þakka heilbrigðisátaki og herferð þennan árangur og hafa reiknað út að hættan á heilablóðfalli og hjartabilun hafi minnkað um 75 til 80% hjá fólki yngra en 65 ára.
Á vefsíðu Lýðheilsustöðvar má finna könnun Manneldisráðs Íslands um mataræði Íslendinga frá 2002 og þar kemur fram að Íslendingar neyta að meðaltali um 8,9 gramma af salti á dag. En sú tala er nefnd með þeim fyrirvara að hún mæli til dæmis ekki það salt sem stráð er út á mat eftir að hann hefur verið eldaður og telja höfundar skýrslunnar að raunveruleg saltneysla Íslendinga sé hærri en þessi tala ber vott um.
Í Svenska Dagbladet kemur fram að finnski blóðþrýstingurinn hafi lækkað til muna og samkvæmt nýjustu rannsóknum mun sá árangur hafa bætt sex árum við lífslíkur landsmanna.
Greint frá á heimasíðu Mbl.is
-
Keppni4 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn4 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt5 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn1 dagur síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu


