Uppskriftir
Eplakaka Milanese
Þessa köku lærði ég að gera hjá Ítölskum kokki sem vann með mér 3 daga í veiðihúsinu í Kjarrá, Þverárhlíð. Þessi kokkur sýndi mér nýja hlið á Ítalskri matreiðslu. Fullkominn eplakaka!
Deig:
250 gr Hveiti
160 gr Smjör
½ Sítróna – börkurinn í ræmur
½ tsk vanillusykur
2 egg
1 gr salt
Fylling:
6 stk græn epli
½ tsk vanillusykur
½ sítróna – börkurinn í ræmur
100 gr sykur
10 ml dökkt romm
Aðferð:
1-Hnoðið saman degið varlega og látið hvílast í kæli í 2 tíma.
2-Fletjið degið út og látið í botninn á forminu.
3-Setjið einnig lag af deginu í hliðar formsins.
4-Setjið fyllingu í formið svo rétt nemi við efstu brún degsins.
5-Setið restina af deginu yfir fyllinguna og sléttið vel.
Fylling:
1-Afhýðið og kjarnskerið eplin og skerið í bita á stærð við nögl.
2-Setjið allt í pott og sjóðið varlega í nokkrar mínútur-Kælið vel.
Bakið við 160 gráður í 50 mínútur takið hana varlega úr forminu og bakið áfram í 20 mínútur við 160 á hvolfi. Stráið flórsykri og látið hvílast í 20 mínútur áður en skorið er niður.
Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Markaðurinn18 klukkustundir síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir
-
Starfsmannavelta20 klukkustundir síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn6 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




