Markaðurinn
Ekkert samráð haft við fagfélögin
„Við óttumst að innleiðing þessarar reglugerðar geti bitnað á gæðum námsins,“
segir Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS, um nýja reglugerð Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra.
Eins og fram kom hér á vefnum í gær munu námssamningar iðnnema frá 1. ágúst næstkomandi vera á forræði skólanna sjálfra. Skólarnir munu bera ábyrgð á því að finna vinnustað þar sem nemandinn fær leiðsögn og æfingu við raunaðstæður en fram til þessa hafa nemendur sjálfir þurft að sjá um að komast á samning. Reglugerðin kveður á um að ef ekki tekst að koma nemanda á samning taki við svokölluð skólaleið, þar sem skólinn þarf að sjá til þess að nemandinn fái þá þjálfun sem hann þarf. Það getur verið þjálfun á fleiri en einum vinnustað.
Reglugerðin felur líka í sér að horft verði til hæfni nemandans við ákvörðun um lengd vinnustaðanáms. Hæfnisþættir hafa verið skilgreindir fyrir hverja námsgrein og þarf nemandinn að ná tökum á þeim handbrögðum. Ráðherra vill meina að með þessu fyrirkomulagi verði vinnustaðanámið markvissara en verið hefur og nemendur eigi kost á því að útskrifast fyrr.
Óskar bendir á að MATVÍS hafi aldrei haft tækifæri til að koma að vinnu við undirbúning reglugerðarinnar. Hann gagnrýnir samráðsleysið harðlega og óttast að slakað verði á kröfum með nýju fyrirkomulagi.
„Við höfum í gegn um tíðina skilað af okkur fagfólki á heimsmælikvarða. Það hefur tekist vegna gæða námsins og vegna meistarakerfisins – þetta samspil atvinnulífs og skóla hefur fleytt okkur þangað sem við erum í dag,“
útskýrir hann.
MATVÍS sendi, ásamt öðrum fagfélögum, umsögn við drög að reglugerðinni í desember. Þar var kallað eftir auknu samráði og samstarfi við fagfélögin, svo sjónarmið þeirra kæmust að á frumstigi málsins, auk þess sem efnislegar athugasemdir voru gerðar við drögin.
„Það lítur út fyrir að ákveðið hafi verið frá byrjun að við fengjum ekki að vera með í mótun þessarar reglugerðar,“
segir Óskar.
Umsögn iðnfélaganna um drög að reglugerð menntamálaráðherra.
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn1 dagur síðanLíður að jólum
-
Pistlar1 dagur síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn10 klukkustundir síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




